Lífið

„Heimurinn væri betri ef allir hefðu hjartað hans Sævars“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Gulli ásamt eiginkonu sinni Ágústu og syni þeirra Sævari á góðri stundu.
Gulli ásamt eiginkonu sinni Ágústu og syni þeirra Sævari á góðri stundu. vísir/hulda

Gunnlaugur Helgason er einn vinsælasti útvarpsmaður landsins og einnig einn vinsælasti sjónvarpsmaður þjóðarinnar.

Segja má að hann hafi verið í viðtækjum og á skjáum landsmanna í áratugi og vita allir hver Gulli Helga er. Þessi lífsglaði og skemmtilegi maður er gestur vikunnar í Einkalífinu.

Gulli er giftur Ágústu Valsdóttur og eiga þau stóra og fallega fjölskyldu og eiga þrjú börn saman. Gulli á eitt barn úr fyrra sambandi. Árið 1996 eignuðust þau drenginn Sævar Þór Gunnlaugsson sem er einstakur drengur. Hann fæddist ekki með öll spilin á hendi en hefur sannarlega komið sér vel fyrir og starfar í dag í íþróttavöruversluninni Jói útherji.

„Það er virkilega gaman að vera pabbi hans. Heimurinn væri betri ef allir hefðu hjartað hans Sævars,“ segir Gulli og heldur áfram.

„Hann er mjög jákvæður nema þegar Liverpool tapar og þá er Klopp aumingi og það á að selja Salah. Hann safnar myndum af sér og frægum og fyrir þá sem vilja kíkja á það þá er hann á Instagram. Þar setur hann inn myndir af sér og öllum frægum. Hann elskar Herra Hnetusmjör og vill alltaf fá mynd af sér og Árna Páli og ég segi alltaf við hann að hann eigi mynd af sér með honum. Þá svarar hann, en ég á enga nýja. Hann er algjörlega frábær.“´

 Í þættinum hér að ofan ræðir Gulli einnig um upphafsárin í útvarpinu, leiklistarnámið í Los Angeles, útvarpsþáttinn vinsæla Tveir með öllu, um öll árin í Bítinu á Bylgjunni, um þættina Gulla Byggi, um eiginkonu sína og börn, systurmissinn, framhaldið og margt fleira.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.