Blær setti upp bókina, Bergrún Íris myndskreytti, Þórunn Eva skrifaði og Jón Sverrir litaði.Rakel Ósk
Út er komin bókin Mía fer í Tívolí. Höfundur bókarinnar er Þórunn Eva G. Pálsdóttir en Bergrún Íris Sævarsdóttir myndskreytti. Jón Sverrir sonur Þórunnar fékk það skemmtilega hlutverk að aðstoða Bergrúnu og litaði teikningarnar í bókinni.
Þórunn og Bergrún gáfu fyrst saman út bókina Mía fær lyfjabrunn, sem öll börn sem þurfa á lyfjabrunni að halda fá að gjöf á Landspítalanum. Eins og fjallað hefur verið um á Vísi á Þórunn sjálf tvo langveika drengi svo málefnið stendur henni nærri.
Hér fyrir neðan má sjá nokkrar myndir frá þessum bókaviðburði sem var svo sannarlega með tívolí þema. Allar myndirnar tók ljósmyndarinn Rakel Ósk.
Blöðrulistaverkin slógu í gegn.Rakel ÓskYngstu gestirnir lituðu. Rakel ÓskSumir lituðu blöðrulistaverkin sín. Rakel ÓskÞórunn Eva og Bergrún Íris. Rakel ÓskSáttur með sverðið! Rakel ÓskEmmsjé Gauti mætti í útgáfuhófið. Rakel Ósk
Fleiri myndir frá Rakel Ósk má finna í albúminu hér fyrir neðan.
Míuverðlaunin voru afhent í þriðja sinn við hátíðlega athöfn á Spritz Venue Reykjavík í gær. Tíu heilbrigðisstarfsmenn sem vinna með langveikum börnum voru heiðraðir á viðburðinum.
Þórunn Eva G. Pálsdóttir er konan á bak við góðgerðarfélagið Mia Magic sem einbeitir sér að því að gleðja langveik börn og foreldra þeirra ásamt því að fræða aðra. Sjálf er hún móðir tveggja langveikra drengja en þeir eru báðir með genagalla á ónæmiskerfinu.
Styrktarfélagið Mia Magic afhenti Barnaspítala Hringsins 30 Míu bangsa í gær. Jón Sverrir Árnason, sonur Þórunnar Evu stofnanda Mia Magic, afhenti fyrsta Míu bangsann sem Barnaspítalinn fékk honum Sölva Páli Hólm.
Þórunn Eva G. Pálsdóttir hlaut titilinn Framúrskarandi ungur Íslendingur árið 2021 í gær. Þórunn Eva hefur vakið athygli á málefnum langveikra barna og aðstandenda þeirra. Hún hefur skrifað bók um efnið, stofnað góðgerðarsamtök og stendur á bak við Míuverðlaunin.