Gamla konan með fjórða sigurleikinn í röð Smári Jökull Jónsson skrifar 6. nóvember 2022 21:45 Adrien Rabiot fagnar hér marki sínu fyrir framan ánægða stuðningsmenn Juvents. Vísir/Getty Juventus vann sinn fjórða sigur í röð í ítölsku Serie A deildinni þegar liðið lagði erkifjendur sína í Inter á heimavelli í kvöld. Lokatölur 2-0 og Gamla konan fer því upp fyrir Inter í töflunni. Juventus hefur verið að rétta úr kútnum í deildarkeppninni þrátt fyrir að ekkert hafi hvorki gengið né rekið hjá liðinu í Meistaradeildinni. Fyrir leikinn í dag var Juventus með 22 stig í töflunni, tveimur á eftir Inter. Staðan í hálfleik var markalaus en síðari hálfleikurinn var ekki nema sjö mínútna gamall þegar Adrien Rabiot kom Juventus í 1-0 eftir sendingu frá Filip Kostic. Kostic átti síðan skot í stöng á 76.mínútu áður en hann lagði upp sitt annað mark í leiknum fyrir Nicolo Fagioli á 84.mínútu. Lokatölur í leiknum 2-0 og Juventus situr nú í fimmta sæti deildarinnar og er farið að nálgast toppliðin, allavega þau þrjú sem sitja í sætunum á eftir toppliði Napoli sem er með sex stiga forskot á AC Milan í öðru sætinu. Fótbolti Ítalski boltinn
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti
Uppgjörið: Ísland - Ítalía 71-95 | Afleitur fyrri hálfleikur gerði Íslandi erfitt fyrir Körfubolti