Tónlist

Sven-Bertil Taube er látinn

Bjarki Sigurðsson skrifar
Sven-Bertil Taube er látinn, 87 ára að aldri.
Sven-Bertil Taube er látinn, 87 ára að aldri. Wikipedia

Einn ástkærasti listamaður Svía, Sven-Bertil Taube, er látinn, 87 ára að aldri. Hann var sonur tónskáldsins Evert Taube og öðlaðist frægð fyrir endurútgáfur af lögum föður síns.

Sænska ríkisútvarpið greinir frá þessu. Fyrsta plata Sven-Bertil kom út árið 1954 þegar hann var tvítugur. Plötuna tók hann upp í Connecticut í Bandaríkjunum þar sem hann bjó ásamt foreldrum sínum. Á plötuni söng hann klassísk sænsk lög. 

Sex árum seinna gaf hann út aðra plötu þar sem hann söng lög sænska tónskáldsins Carl Michael Bellman. Sama ár gaf hann út aðra plötu þar sem hann söng lög sem faðir hans hafði samið. 

Á sjöunda og áttunda áratugnum gaf hann út tuttugu breið- og smáskífur en eftir það fór útgáfugleði hans dvalandi. Á sama tíma hóf hann leiklistarferil sinn. Hann lék mikið í leikhúsi, þar á meðal í leikhúsi á West End í London. Hann bjó lengi vel í ensku höfuðborginni. 

Sven-Bertil þótti afar góður leikari og hlaut mörg verðlaun fyrir leik sinn, þar á meðal fyrir myndirnar En enkel till Antibes sem kom út árið 2011 og Händerna sem kom út árið 1994.

Sjón Sven-Bertils fór versnandi með árunum og greindist hann með sjóndepilsrýrnun. Hann ræddi mjög opinskátt um veikindi sín í heimildarmynd um líf hans sem sýnd var í sænska ríkissjónvarpinu árið 2016.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.