Lífið

Love Island-stjörnur fóru í Bláa lónið og skemmtu sér á Auto

Bjarki Sigurðsson skrifar
Saman fór parið meðal annars í vélsleðaferð og í Bláa lónið.
Saman fór parið meðal annars í vélsleðaferð og í Bláa lónið.

Love Island-stjörnurnar Dami Hope og Indiyah Polack eru stödd hér á landi. Í gær skellti parið sér í Bláa lónið, borðaði á Héðinn Kitchen & Bar og fóru þau svo á skemmtistaðinn Auto við Lækjargötu.

Þau voru dugleg að birta myndir og myndbönd af sér á Instagram í gær. Á föstudaginn fóru þau í vélsleðaferð á vegum Mountainers of Iceland og á fimmtudaginn skoðuðu þau íshella.

Í gær fóru þau í Bláa lónið og birtu bæði myndir af sér þaðan. Indiyah virðist vera orðin ansi hrifin af íslensku sælgæti og birti mynd af kassa af Hrauni. Við myndina skrifaði hún „þetta er bókstaflega svo gott“.

Indiyah er ansi hrifin af Hrauni.

Eftir að hafa slakað á í Bláa lóninu fór parið á skemmtistaðinn Auto við Lækjargötu. 

Stutt er síðan önnur Love Island-stjarna úr sömu þáttaröð, Jacques O'Neill, var hér á landi. Hann fór einnig í vélsleðaferð og naut sín vel á landinu. 


Tengdar fréttir

Umdeild Love Island-stjarna á landinu

Jacques O'Neill er staddur á landinu. Jacques varð heimsfrægur í sumar þegar hann tók þátt í bresku raunveruleikaþáttunum Love Island. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.