Guðmundur Bragi með tæp tíu mörk að meðaltali í leik eftir þjálfaraskiptin Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 5. desember 2022 16:01 Guðmundur Bragi Ástþórsson hefur skorað 39 mörk í fjórum leikjum eftir þjálfaraskiptin hjá Haukum. vísir/diego Haukamaðurinn Guðmundur Bragi Ástþórsson hefur verið rjúkandi heitur að undanförnu. Hann er með tæp tíu mörk að meðaltali í leik eftir að Haukar skiptu um þjálfara í síðasta mánuði.
Guðmundur Bragi skoraði fjórtán mörk úr fimmtán skotum þegar Haukar sigruðu Hörð, 37-43, á Ísafirði á laugardaginn. Hann gaf einnig ellefu stoðsendingar og kom því með beinum hætti að 25 mörkum í leiknum. Þetta var þriðji sigur Hauka síðan Ásgeir Örn Hallgrímsson tók við liðinu af Rúnari Sigtryggssyni fyrir um mánuði síðan. Haukar töpuðu fyrsta leiknum undir stjórn Ásgeirs, 32-34 fyrir Val, en þá var Guðmundur Bragi meiddur. Í síðustu fjórum leikjum Hauka hefur hann hins vegar farið hamförum og skorað samtals 39 mörk, eða 9,73 mörk að meðaltali í leik. Guðmundur Bragi skoraði fjórtán mörk gegn Herði, níu mörk gegn ÍR, ellefu mörk gegn Gróttu og fimm mörk gegn ÍBV. Haukar unnu Harðverja, ÍR-inga og Eyjamenn en töpuðu fyrir Seltirningum. Ekki var hægt að kvarta mikið yfir frammistöðu Guðmundar Braga meðan Rúnar var við stjórnvölinn hjá Haukum. Í sjö deildarleikjum undir stjórn Rúnars skoraði Guðmundur Bragi 43 mörk, eða 6,14 mörk að meðaltali leik. En hann er með rúmlega þremur mörkum meira að meðaltali í leik eftir að Ásgeir tók við. Skotnýtingin er líka mun betri; 73,6 prósent gegn 57,3 prósentum. Guðmundur Bragi hefur alls skorað 82 mörk í Olís-deildinni og er markahæstur í liði Hauka. Hafnfirðingar eru í 7. sæti deildarinnar með ellefu stig eftir tólf leiki.
Olís-deild karla Haukar Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Liverpool - Chelsea | Stórleikur í deildarbikarnum Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór Sjá meira