Dæmdur fyrir morðið í Visby og skipulagningu hryðjuverkaárásar Atli Ísleifsson skrifar 6. desember 2022 10:23 Árásin átti sér stað þann 6. júlí síðastliðinn þegar hin árlega stjórnmálavika í Almedalnum á Gotlandi fór fram. EPA Dómstóll í Svíþjóð dæmdi í morgun hinn 33 ára Theodor Engström fyrir morð á konu á sjötugsaldri á götu úti í Visby á Gotlandi í sumar og skipulagningu hryðjuverkaárásar.
Engström var dæmdur til vistunar á réttargeðdeild og getur sérstakur dómstóll einn úrskurðað um mögulega lausn mannsins. Árásin átti sér stað þann 6. júlí síðastliðinn þegar hin árlega stjórnmálavika í Almedalnum fór fram þar sem allir helstu stjórnmálaleiðtogar Svíþjóðar safnast saman. Kom fram við rannsókn að Engström hafi ætlað sér að bana formanni sænska Miðflokksins, Annie Lööf. Engström stakk hina 64 ára Ing-Marie Wieselgren til bana en hún var einn helsti sérfræðingur Svíþjóðar í geðheilbrigðismálum og var stödd á Gotlandi í tilefni af stjórnmálavikunni. Réðst Engström á hana með hníf og lést hún síðar af sárum sínum. Í frétt SVT kemur fram að dómari hafi ekki metið morðið á Wieselgren sem hryðjuverk, en að með því að hafa ætlað sér að myrða formann Miðflokksins hafi Engström gerst sekur um skipulagningu hryðjuverkaárásar. Lööf átti að halda fréttamannafund nærri þeim stað þar sem Engström réðst á Wieselgrein, skömmu eftir að árásin var gerð. Annie Lööf tilkynnti eftir þingkosningarnar í september síðastliðinn að hún myndi láta af formennsku í Miðflokknum. Sagði hún að málið hafi haft mikil áhrif á sig og fjölskyldu sína.
Svíþjóð Tengdar fréttir Ætlaði sér að bana formanni sænska Miðflokksins Lögregla í Svíþjóð segir að maður, sem stakk konu á sjötugsaldri til bana í Visby á Gotlandi í júlí, hafi ætlað sér að myrða Annie Lööf, formann sænska Miðflokksins. Árásin átti sér stað þann 6. júlí þegar hin árlega stjórnmálavika í Almedalnum fór fram þar sem allir helstu stjórnmálaleiðtogar Svíþjóðar safnast saman. 26. ágúst 2022 08:00 Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira
Ætlaði sér að bana formanni sænska Miðflokksins Lögregla í Svíþjóð segir að maður, sem stakk konu á sjötugsaldri til bana í Visby á Gotlandi í júlí, hafi ætlað sér að myrða Annie Lööf, formann sænska Miðflokksins. Árásin átti sér stað þann 6. júlí þegar hin árlega stjórnmálavika í Almedalnum fór fram þar sem allir helstu stjórnmálaleiðtogar Svíþjóðar safnast saman. 26. ágúst 2022 08:00