Endurheimt dráttarbeislisins kannski sögulok Geysisslyssins Kristján Már Unnarsson skrifar 11. desember 2022 22:42 Haukur Alfreðsson rekstrarverkfræðingur er sonur Alfreðs Elíassonar, eins af stofnendum Loftleiða. Ívar Fannar Arnarsson Merkum flugsöguminjum, sem tengjast Geysisslysinu á Vatnajökli, hefur verið bjargað til byggða eftir að hafa legið uppi á hálendi í meira en sjötíu ár. Sonur Alfreðs Elíassonar, stofnanda Loftleiða, sótti gripina núna í vetrarbyrjun ásamt félaga sínum í þriggja daga leiðangri að rótum Síðujökuls.
Fjallað var um málið í fréttum Stöðvar 2 og birt gömul myndskeið úr heimildarmyndinni Alfreð Elíasson og Loftleiðir sem sonur Alfreðs og höfundur myndarinnar, Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, veittu okkur góðfúslegt leyfi til að sýna. Loftleiðamenn grafa skíðaflugvélina upp úr jöklinum vorið 1951. Hún hafði lent á Bárðarbungu haustið áður til að sækja áhöfn Geysis.Úr myndinni Alfreð Elíasson og Loftleiðir Brotlending Loftleiðavélarinnar Geysis á Bárðarbungu þann 14. september árið 1950 og fagnaðarbylgjan sem fór um landið þegar sex manna áhöfn hennar fannst á lífi fjórum dögum síðar er einn frægasti atburður íslenskrar flugsögu. Og ekki síður eftirleikurinn, þegar Dakota-skíðavél bandaríska flughersins, sem átti að sækja áhöfnina, komst ekki á loft og snjóaði inni á jöklinum. Loftleiðamönnum tókst svo vorið eftir að grafa hana upp úr sex metra djúpri fönn og fljúga til byggða. Hér sést beislið sem notað var til að draga flugvélina niður af Vatnajökli.Úr myndinni Alfreð Elíasson og Loftleiðir Þeir Haukur Alfreðsson og Jón Atli Ólafsson eru þó ekki á því að sögunni sé lokið því þann 12. október síðastliðinn lögðu þeir upp í leiðangur. Tilgangurinn var að sækja hlut sem hafði orðið eftir á fjöllum vorið 1951 þegar Loftleiðamenn drógu skíðavélina af Bárðarbungu og niður af jöklinum alla leið á hraunsléttu norðan við fjallið Blæng þar sem þeim tókst að koma henni á loft. Mannfjöldi fagnaði komu Dakota-skíðavélarinnar til Reykjavíkur þann 7. maí 1951. Loftleiðamenn gáfu henni nafnið Jökull.Úr myndinni Alfreð Elíasson og Loftleiðir Mannfjöldi fagnaði Alfreð Elíassyni og félögum þegar þeir svo lentu vélinni á Reykjavíkurflugvelli. Á þeim sama stað, þar sem Loftleiðir voru með flugafgreiðslu sína, höfum við mælt okkur mót við son Alfreðs, Hauk, til að forvitnast um ferðalag þeirra núna á haustdögum upp á Síðufjöll. „Við fórum austur að Kirkjubæjarklaustri og síðan upp að Vatnajökli, Síðujökli, og náðum í gamalt beisli sem er búið að vera þar frá því ég fæddist, árið 1951,“ segir Haukur. Þeir Alfreð Elíasson, Kristinn Olsen og Hrafn Jónsson við komuna til Reykjavíkur. Með Alfreð er eiginkonan, Kristjana Milla Thorsteinsson.Úr myndinni Alfreð Elíasson og Loftleiðir Hann segir að þeir Alfreð, Kristinn Olsen og Hrafn Jónsson hafi skipulagt leiðangurinn en Hrafn smíðaði dráttarbeislið sérstaklega fyrir þetta verkefni. „Þetta beisli var notað til þess að draga vélina niður af jöklinum og niður á stað sem þeir töldu að væri óhætt að taka vélina í loftið aftur. Þetta tók þá einhverja 29 daga að grafa vélina upp úr jöklinum, meira að segja tvisvar sinnum, og koma henni niður af jöklinum, á 29 dögum.“ Þeir Haukur Alfreðsson og Jón Atli Ólafsson með Rolls Royce-vélina Leif Eiríksson. Fyrir aftan er málverk af Alfreð Elíassyni.Úr einkasafni Geysisslysið settið fjárhag Loftleiða í uppnám. Þegar Bandaríkjaher afskrifaði skíðavélina eftir árangurslausa leiðangra til að bjarga henni gripu Loftleiðamenn tækifærið. „Og keyptu vélina fyrir lítið en gátu síðan selt hana fyrir góðan pening. Og þannig björguðu þeir í raun og veru fjárhag félagsins.“ Loftleiðamenn fengu flugvélina á brotajárnsverði eftir að bandaríski flugherinn afskrifaði hana.Úr myndinni Alfreð Elíasson og Loftleiðir Haukur segir að alltaf hafi verið vitað um beislið en það er níu metrar á lengd og sex og hálfur á breidd. Beislið hafði upphaflega reynst of fyrirferðarmikið til ferðalagsins árið 1951 og var því tekið í sundur og svo aftur sett saman á jöklinum. Dráttarbeislið hafði legið við fjallið Blæng frá árinu 1951.Haukur Alfreðsson „Og það er bara mjög heillegt. Við ákváðum það sem sagt að taka það ekki í sundur því að þá hefðum við hreinlega bara eyðilagt það.“ Olíutunnur sem þeir fundu einnig á staðnum komu sér vel þegar nota þurfti vogarafl til að lyfta 300 kílóa þungu beislinu upp á kerruna. Tunnurnar eru líka söguminjar því þær gegndu hlutverki flugbrautarmerkinga árið 1951. Jón Atli og Haukur komnir með beislið á kerruna.Haukur Alfreðsson „Þá var snjór yfir hrauninu og þeir settu tunnurnar þar sem þeir vildu vera komnir í loftið. Það segir nú í bókinni hans pabba að þeir hafi verið komnir í mikla hæð þegar þeir loksins komust að tunnunum því að flugtakið tókst það vel.“ Leiðangur þeirra Hauks og Jóns Atla tók þrjá daga. Síðasta daginn var kominn snjór og krapi og yfir ár og vegleysur að fara. En hversvegna að leggja þetta allt á sig? Beislið á leið til byggðaHaukur Alfreðsson „Ja.. beislið er náttúrulega stórmerkilegt og það er synd að láta það bara tærast þarna upp við Vatnajökul. Hugmyndin er sem sagt að koma því vel fyrir, inn á safn, þannig að það varðveitist,“ svarar Haukur. -Þetta er hluti af flugsögunni? „Já, þetta er mikill hluti af flugsögunni. Og er í raun og veru svona kannski endirinn á Geysisslysinu og þessari björgun; að koma beislinu til byggða,“ segir sonur Alfreðs Elíassonar. Hér má sjá frétt Stöðvar 2:
Fréttir af flugi Fornminjar Icelandair Tengdar fréttir Flugmódel af Geysi flýgur í fyrsta sinn Eftirlíking af Loftleiðavélinni Geysi, sem brotlenti á Vatnajökli haustið 1950, þykir eitt glæsilegasta flugmódel sem smíðað hefur verið. 2. september 2016 19:45 Loftleiðamenn vildu kaupa Boeing 747 þotur árið 1972 Loftleiðir voru við það að kaupa tvær júmbó-þotur skömmu fyrir sameiningu flugfélaganna, segir Jóhannes Einarsson verkfræðingur, einn helsti samstarfsmaður Alfreðs Elíassonar. 19. apríl 2017 21:30 Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Fleiri fréttir „Fyrst og fremst erfitt“ Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Stakk af frá fargjaldi leigubíls Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Runólfur verður áfram forstjóri Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Deila um sóttkví fer alla leið „Við getum ekki öll búið í Reykjavík“ Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku og svarar gagnrýni Jóns Gnarr Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Enn enginn grunaður um innbrotið Sjá meira
Flugmódel af Geysi flýgur í fyrsta sinn Eftirlíking af Loftleiðavélinni Geysi, sem brotlenti á Vatnajökli haustið 1950, þykir eitt glæsilegasta flugmódel sem smíðað hefur verið. 2. september 2016 19:45
Loftleiðamenn vildu kaupa Boeing 747 þotur árið 1972 Loftleiðir voru við það að kaupa tvær júmbó-þotur skömmu fyrir sameiningu flugfélaganna, segir Jóhannes Einarsson verkfræðingur, einn helsti samstarfsmaður Alfreðs Elíassonar. 19. apríl 2017 21:30