Lífið

Jóla­daga­tal Vísis: Gamlir og nýir tímar mætast í mynd­bandi við lag Klöru

Margrét Björk Jónsdóttir skrifar
Saga Sig leikstýrði tónlistarmyndbandi Klöru Elías við lagið Eyjanótt
Saga Sig leikstýrði tónlistarmyndbandi Klöru Elías við lagið Eyjanótt

Þjóðhátíð er landsmönnum mögulega ekki efst í huga korter í jól, en það kom ekki annað til greina en að leyfa einu vinsælasta lagi ársins, Eyjanótt með Klöru Elías, að vera partur af Jóladagatali Vísis. 

Lagið er Þjóðhátíðarlag ársins 2022 og sló rækilega í gegn. 

Í samtali við Vísi sagði Klara frá gerð myndbandsins. 

„Mig langaði að finna leið til að leyfa gömlum og nýjum tímum að mætast. Það eru liðin tvö ár síðan við fengum að halda Þjóðhátíð og það verður stórkostlegt að koma saman aftur.

Ég fann gamlar filmur frá hátíðarhöldum í Vestmannaeyjum um miðja síðustu öld sem mér fannst dásamlegt að leyfa að vera með og vera í smá aðalhlutverki. Láta nútímann og myndir úr sögu Eyja mætast. Svo er svo ótrúlegt að vinna svona verkefni með hæfileika konu eins og Sögu Sig sem las eiginlega hugsanir mínar algjörlega og gerði myndbandið að sínu á sinn einstaka hátt. Okkur hefur langað að vinna saman lengi og það var heiður að fá hana með mér í þetta."

Hvernig gekk ferlið?

„Þetta var eiginlega bara smá ævintýri - fara saman til Eyja og skjóta myndbandið og það var svo vel tekið á móti okkur alls staðar. Við vorum með troðfullan bíl af fötum og glimmeri og stelpurnar hlógu allan daginn af mér því ég vildi ekki láta gera neitt við hárið á mér nema það væri einhverskonar ný útfærsla á fléttu. Enda elska ég allar þessar fléttu greiðslur sem Hildur Ösp Gunnarsdóttir hárgreiðslu stjarnan mín gerði!" sagði Klara. 

Lag dagsins er Eyjanótt Með Klöru Elías.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.