Segir deilu landsliðsþjálfarans og Reyna-fjölskyldunnar sorglega sápuóperu Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 6. janúar 2023 14:30 Gregg Berhalter segir Gio Reyna til. getty/ANP Deila Greggs Berhalter, þjálfara bandaríska karlalandsliðsins í fótbolta, og fjölskyldu landsliðsmannsins Gio Reyna er sorgleg sápuópera. Þetta segir Heather O'Reilly, fyrrverandi landsliðskona Bandaríkjanna.
Móðir Reynas, Danielle, steig fram á dögunum og viðurkenndi að hafa greint bandaríska knattspyrnusambandinu frá því að Berhalter hafi sparkað í eiginkonu sína 1991, þegar þau voru táningar. Danielle segist hafa gert þetta því hún hafi verið pirruð vegna ummæla Berhalter um Gio eftir HM í Katar. Þá sagði Berhalter að einn leikmaður liðsins hafi verið nálægt því að vera sendur heim af mótinu þar sem hann hafi hvorki staðist væntingar innan né utan vallar. Þótt Gio hafi ekki verið nafngreindur staðfesti hann það sjálfur í færslu á Instagram daginn eftir. Reyna sagði þá frá því að í Katar hafi hann beðið þjálfarann og liðsfélaga sína afsökunar og verið fyrirgefið. Berhalter hefur viðurkennt að hafa sparkað í eiginkonu sína en vill halda áfram sem þjálfari bandaríska liðsins sem komst í sextán liða úrslit á HM í Katar og verður á heimavelli á HM eftir þrjú ár. „Enginn er sigurvegari í svona stöðu,“ sagði O'Reilly um málið á BBC. „Að koma með eitthvað þrjátíu ára gamalt mál upp á yfirborðið er eitthvað annað að mínu mati. Ég legg aldrei blessun mína yfir ofbeldi en þetta var fyrir 31 ári síðan. Þau sættust eftir þetta og hafa átt farsælt hjónaband í aldarfjórðung.“ O'Reilly er afar ósátt við þetta útspil Reyna-fjölskyldunnar. „Ég held að þau sé pirruð yfir því að sonurinn hafi verið ataður auri. En þetta var algjört neðanbeltishögg og andstyggilegt í þokkabót. Þetta er sorglegt og raunar aumkunarverður dagur fyrir bandarískan fótbolta.“ Claudio Reyna og Berhalter hafa þekkst frá því þeir voru krakkar og léku meðal saman í framhaldsskóla og í bandaríska landsliðinu. Þá voru Danielle Reyna og Rosalind Berhalter samherjar í Norður-Karólínu háskólanum í fjögur ár. Tengingin milli fjölskyldnanna er því mjög sterk.
HM 2022 í Katar Mest lesið Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Fótbolti KR - Víkingur 1-1| Arnór Ingvi bjargaði stigi fyrir KR á lokasekúndunni Íslenski boltinn Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Íslenski boltinn Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Íslenski boltinn „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Enski boltinn Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Íslenski boltinn Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Íslenski boltinn McTominay í hjartaaðgerð Fótbolti Ensku félögin með bókhaldsbrellur Enski boltinn Sveindís skoraði í langþráðum sigri Fótbolti Fleiri fréttir KR - Víkingur 1-1| Arnór Ingvi bjargaði stigi fyrir KR á lokasekúndunni Albert til Lazio og kaupákvæði fylgir með Lið Salah þjálfaralaust eftir furðulega daga Íslendingalið Brann hlaut þungan skell Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Slær Aron markametið í kvöld? McTominay í hjartaaðgerð „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Mbaye til Aston Villa Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Albert lánaður til Lazio Ensku félögin með bókhaldsbrellur Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Arteta vill bæta við hópinn í dag Gata nefnd í höfuð Salah í Tyrklandi „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sjáðu Stjörnuna klára Blika Sveindís skoraði í langþráðum sigri Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Barcelona með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Vandræði Sønderjyske halda áfram þegar liðið tapaði manni færri Sjá meira