Lífið

„Ég er að reyna að samgleðjast en ég öfunda þig bara svo mikið“

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Sýnishorn úr fyrsta þætti af nýrri þáttaröð af Heimsókn.
Sýnishorn úr fyrsta þætti af nýrri þáttaröð af Heimsókn. Stöð 2

Tólfta þáttaröðin af Heimsókn fer í loftið þann 11. janúar.  Í nýju sýnishorni má sjá brot af þeim heimilum sem Sindri Sindrason heimsækir að þessu sinni. 

Skoðar hann meðal annars glæsilegt „penthouse“, einstaka íslenska byggingarlist ásamt vel heppnuðum fyrir og eftir breytingum svo eitthvað sé nefnt. 

Hér fyrir neðan má sjá stiklu fyrir tólftu þáttaröðina. 

Klippa: Heimsókn - Sýnishorn úr 12. þáttaröð

Í fyrsta þættinum er innlit í höll Hrafnhildar P. Þorsteinsdóttur í Kópavogi. Hrafnhildur keypti húsið ásamt eiginmanninum. Um er að ræða eign frá 1970 og garðurinn er einn sá glæsilegasti á landinu.  Þau tóku húsið í gegn frá A til Ö og afraksturinn má sjá í þættinum. 

„Ég er að reyna að samgleðjast en ég öfunda þig bara svo mikið,“ heyrist Sindri meðal annars segja í auglýsingunni fyrir fyrsta þáttinn. 

Klippa: Heimsókn snýr aftur á miðvikudag





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.