Rauða spjaldið sem Félix fékk kostar Chelsea 209 milljónir króna Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 13. janúar 2023 16:30 Joao Félix situr á grasinu eftir að hafa tæklað Kenneth Tete. Andartaki síðar fékk Portúgalinn rautt spjald. getty/Ryan Pierse Rauða spjaldið sem Joao Félix fékk í sínum fyrsta leik fyrir Chelsea reyndist ekki bara dýrt innan vallar heldur tekur það einnig í buddu félagsins.
Félix var rekinn af velli þegar Chelsea tapaði, 2-1, fyrir Fulham í ensku úrvalsdeildinni í gær. Þetta var fyrsti leikur Portúgalans fyrir Chelsea eftir að hann kom til félagsins á láni frá Atlético Madrid. Chelsea greiddi Atlético Madrid níu milljónir punda til að fá Félix auk þess sem félagið borgar laun hans, sem eru talin nema samtals sex milljónum punda. Félix kostar Chelsea því samtals fimmtán milljónir punda, eða rúmlega 714.000 pund á hvern leik sem eftir er í ensku úrvalsdeildinni. Ljóst er að Félix fer í þriggja leikja bann og því kostar rauða spjaldið sem hann fékk félagið rúmlega 2,1 milljón punda, eða 209 milljónir íslenskra króna. Félix var sprækur áður en hann tæklaði Kenneth Tete glæfralega á 58. mínútu. Þá var staðan 1-1. Carlos Vinícius skoraði sigurmark Fulham stundarfjórðungi seinna. Með sigrinum komst Fulham upp í 6. sæti ensku úrvalsdeildarinnar. Chelsea er aftur á móti í því tíunda.
Enski boltinn Mest lesið HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Argentína - Ísland 3-0 | Messi messa vestanhafs Fótbolti Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Handbolti Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Fótbolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Endurfundir Messi og Guðjohnsen Fótbolti Segja dómarann vera með tengsl við „hryðjuverkasamtök“ Fótbolti Stoltir foreldrar: Gunnlaugur „manifestaði“ birtu eftir erfitt vor Golf Risa afrek Gunnlaugs og samanburður við þá bestu áhugaverður Golf Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Enski boltinn Fleiri fréttir McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Everton gert að greiða Burnley næstum því sex milljarða króna Sorgarsaga Sancho á enda en Rashford snýr aftur Keane og Fernandes grafa stríðsöxina Rio Ngumoha á heimleið þrátt fyrir flotta frammistöðu Fyrrum Liverpool-stjarna hættur aðeins 31 árs gamall Ein meidd Arsenal-stjarna nær HM en önnur missir af HM Eigandi West Ham sakaður um að notfæra sér ungar konur kynferðislega „Ég verð að spila“ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins „Verður svolítið hissa á því hversu mikil áhrif þetta mun hafa á líf hans“ Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield Segir að Real Madrid sé með munnlegt samkomulag við Konaté Rodri ætlar ekki að ræða framtíð sína fyrr en eftir HM Fer frá Fulham og tekur við Benfica Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein „Öfundsýki alls staðar“ „Ef þú gerir þetta aftur drepurðu mig“ Hefja formlegar viðræður við Iraola Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Sjá meira