Lífið

Stefna á enn stærri bridgehátíð í Hörpu á næsta ári

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Team Black hrósaði sigri.
Team Black hrósaði sigri. Bridgesamand Íslands

Sveitin Black vann nokkuð öruggan sigur í sveitakeppni Reykjavík Bridge Festival í Hörpu sem lauk síðdegis í gær. Þrír liðsmenn sveitarinnar voru sænskir en tveir enskir. Sveitin endaði með 142,9 stig en meðalskor var 100 stig.

Meðlimir í sveit Black voru, Andrew Black, Andrew Mcintosh og Tom Paske, sem eru enskir og Svíarnir Símon Hult, Peter Berthau og Gunnar Hallberg.

Íslenska sveitin J.E.Skjanni var með góða forystu eftir fyrri daginn í keppninni en gekk afleitlega á sunnudag og endaði í 10-11 sæti. Sveit Black var með níu stiga forystu fyrir síðustu umferðina og vann þægilegan sigur 13,72-6,28 gegn sænskri sveit Fredin sem varð að sætta sig við áttunda sætið.

Efsta íslenska sveitin, Grant Thornton, varð í fimmta sæti með rúmlega 127 stig.

Eivind Grude and Christian Bakke urðu í efsta sæti í parakeppninni. Kjartan Ingvarsson og Gunnlaugur Karlsson urðu í öðru sæti.

Kjartan Ingvarsson og Gunnlaugur Karlsson urðu í öðru sæti í parakeppninni.Bridgesamband Íslands

Um sjö hundruð keppendur tóku þátt sem er með fjölmennari bridge-mótum sem haldin hafa verið á landinu. Yngstu keppendur á mótinu voru 13 ára og svo nokkrir á áttræðisaldri. 

Lokastaða 11 efstu sveita varð þannig.

  1. Black 142,98
  2. Ballebo 134,31
  3. Don Julio 132,44
  4. Harris 127,97
  5. Grant Thornton 127,21
  6. Hauge 127,20
  7. De Botton 126,62
  8. Fredin 126,40
  9. The Crazies 126,32
  10. -11. Hjördís Eyþórsdóttir 123,42
  11. -11. J.E.Skjanni 123,42

Matthías Imslands, framkvæmdastjóri mótsins, segir á Bridgespjallinu að mótið hafi heppnast ótrúlega vel. 

„Það var ánægjulegt að Harpa náði að laga lýsinguna töluvert frá fyrri árum sem var kannski það sem hafði verið erfiðast. Við erum í viðræðum við Hörpu um stækkun á svæðinu og þá fyrir framan Kaldalón fyrir næsta ár.“

Þá hafi þeir fengið Svía, Hollending og Dana til að stýra mótinu ásamt Þórði Ingólfssyni. 

„Ég hef ekki tölu á fjölda þeirra erlenda spilara sem sögðu við mig á mótinu að þetta væri uppáhaldsmótið sem þeir mættu á það er skemmtilegt og segir kannski líka dálítið um íslenska spilara. Það voru þrír starfsmenn í spilagjöf allt mótið. Gefin voru rétt um 5800 spil og svo endað á að gefa spil fyrir landsbyggðafélögin til að taka með heim,“ segir Matthías.

„Ég er virkilega ánægður með hverning tókst til og ég held að þessi jákvæða umræða, upplifun og frábæra umgjörð muni skila okkur stærri hátíð á næsta ári og fleiri spilurum inn í hreyfinguna.“

Team Ballebo hafnaði í öðru sæti.Bridgesamband Íslands
Don Julio hafnaði í þriðja sæti.Bridgesamband Íslands
Team Harris hafnaði í fjórða sæti.Bridgesamband Íslands

Team Grant Thornton endurskoðun landaði fimmta sætinu.Bridgesamband Íslands
Þrjú efstu pörin á mótinu.Bridgesamband Íslands
Eivind Grude and Christian Bakke urðu í efsta sæti í parakeppninni.Bridgesamband Íslands
Kjartan Ingvarsson og Gunnlaugur Karlsson urðu í öðru sæti í parakeppninni.Bridgesamband Íslands


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.