Tónlist

Íslensku systurnar lutu í lægra haldi fyrir umdeildum Færeyingi

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Færeyingurinn Reiley fagnaði sigri í dönsku undankeppninni í gær.
Færeyingurinn Reiley fagnaði sigri í dönsku undankeppninni í gær. Ida Marie Odgaard/Ritzau Scanpix, DR

Framlag Dana í Eurovision í ár verður í höndum Færeyingsins Reiley sem verður þar með fyrsti Færeyingurinn til að taka þátt í keppninni. Íslensku systurnar Brynja Mary og Sara Victoria Sverrisdætur, sem koma saman fram undir nafninu Eyjaa, kepptu í gær í úrslitum undankeppni danska ríkisútvarpsins en tókst ekki að komast á pall.

Hinn tvítugi Reiley bar sigur úr bítum í keppninni með laginu Breaking My Heart en hann var fyrir keppni talinn sigurstranglegastur af veðbönkum. Reiley ætti að vera notendum samfélagsmiðilsins TikTok kunnur en þar er hann með rúmlega 10 milljónir fylgjenda. Reiley þykir þó nokkuð umdeildur vegna notkunar sinnar á Auto-Tune tækni sem tónlistarmenn nota meðal annars til að leiðrétta falskar nótur.

Í Eurovision má hins vegar ekki nota auto-tune tækni en það kom ekki að sök hjá Reiley sem notaði samt sem áður annars konar tækni á rödd sína í viðlaginu við Breaking My Heart. Horfa má á flutning hans á úrslitakvöldi Dananna, Melodi grand prix, hér að neðan.

Með sigrinum verður Reiley, sem heitir réttu nafni Rani Petersen, fyrsti Færeyingurinn til að keppa í Eurovision sem verður í ár haldið í Liverpool á Englandi.

Íslensku systurnar Brynja Mary og Sara Victoria fluttu lagið I Was Gonna Marry Him á úrslitakvöldinu en lentu ekki í einu af efstu þremur sætunum. Flutning þeirra má sjá hér að neðan.

Systurnar hafi lengi sungið saman en árið 2021 hafi þær fyrst komið fram undir nafninu Eyjaa sem sé vísun í íslensku – eyja. Fyrsta lag Eyjaa var lagið Don't Forget About Me sem var mikið spilað í dönsku útvarpi. Fjöldi laga hafa svo fylgt í kjölfarið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.