Lífið

Fríða vildi færa sig á Sel­foss til að lækka hús­næðis­lánið

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hólmfríður skoðaði þrjár eignir í sama fjölbýlishúsinu.
Hólmfríður skoðaði þrjár eignir í sama fjölbýlishúsinu.

Í þættinum Draumaheimilinu á Stöð 2 í gærkvöldi var fylgst með leit hitti Hugrún Halldórsdóttir hana Fríðu sem er að hefja nýjan kafla í sínu lífi.

Hana langar að minnka við sig og minnka húsnæðislánin með því að flytja út fyrir höfuðborgarsvæðið. Hún fékk Sirrý vinkonu sína til að aðstoða sig við að skoða þrjár íbúðir á Selfossi og það er Guðmunda á fasteignasölunni Gimli sem tók á móti þeim. Selfoss er í mikilli uppbyggingu og því var spennandi að sjá hvaða eign varð fyrir valinu.

Fyrsta eignin sem Fríða skoðaði var í Víkurmóum 2 á Selfossi en allar eignirnar sem Fríða skoðaði voru í sama fjölbýlishúsinu. Fyrsta eignin á jarðhæð, tæplega áttatíu fermetrar að stærð með tveimur svefnherbergjum og einu baðherbergi. Þar var einnig fallegur sólpallur og verðið 48 milljónir.

Hér að neðan má sjá brot úr þætti gærkvöldsins.

Klippa: Fríða vildi færa sig á Selfoss til að minnka húsnæðislánið





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.