„Ef ég ræð ekki við Rikka G í padel þá get ég ekkert spilað fótbolta“ Stefán Árni Pálsson skrifar 15. mars 2023 19:45 Albert Brynjar Ingason er hættur fótbolta 37 ára. vísir/sigurjón Markahæsti leikmaður í sögu Fylkis hefur lagt skóna á hilluna. Bakslag hans, Padel viðureign gegn Rikka G, var dropinn sem fyllti mælinn.
Albert Brynjar Ingason skoraði 69 mörk í efstu deild sem skilar honum í tuttugasta sæti yfir markahæstu leikmenn í sögu deildarinnar. Þessi 37 ára framherji meiddist illa á hné sumarið 2021 og náði ekki að spila með Fylki síðasta sumar. Hann var leikmaður Kórdrengja þegar hann meiddist. „Þetta hefur verið litríkur ferill, skemmtilegur og upp og niður,“ segir Albert og heldur áfram. „Fallið með Fylki var ákveðinn lágpunktur, að falla niður um deild með uppeldisklúbb er gríðarlega sárt. Svo tímabilið eftir það að komast upp með Fylki og vinna einhvern titil með þeim var yndislegt. Svo er það Íslandsmeistaratitillinn með FH sem var gríðarlega skemmtilegt. En að komast upp úr deild er alltaf skemmtilegt og ég hef gert það með þremur klúbbum.“ Albert birti stöðufærslu á Facebook í dag þar sem hann talar um ákveðið bakslag í meiðslum hans sem gerir það að verkum að skórnir eru komnir á hilluna. „Ætli það hafi ekki verið okkar maður hérna á Stöð 2 sem lokaði ferlinum mínum, hann Rikki G sem tók mig í padel í tvo klukkutíma og jarðtengdi mig þar. Ég fór alveg í hnénu eftir það. Ef ég ræð ekki við Rikka G í padel þá get ég ekkert spilað fótbolta.“ „Ég fór í fjórar aðgerðir eftir að ég meiddist illa sumarið 2021 þar sem ég brotnaði ytra megin á hnénu, sleit ytra liðband og krossband og fékk sýkingu í þetta líka. Þetta er búið að vera upp og niður ferli. Eftir að Fylkir komst upp þá komst ég í rauninni að þeirri niðurstöðu að ég væri eiginlega bara til í að fórna hnénu fyrir Fylki, ekkert annað lið.“
Fótbolti Íslenski boltinn Fylkir Mest lesið „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Ungstirni Chelsea í frystinum eftir að Xabi Alonso tók við Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira