Lífið

Ó­venju­leg förðunar­að­ferð skilar ó­trú­legri út­komu

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Förðunaraðferð TikTok stjörnunnar Meredith Duxbury hefur farið eins og eldur í sinu á samfélagsmiðlum undanfarin misseri.
Förðunaraðferð TikTok stjörnunnar Meredith Duxbury hefur farið eins og eldur í sinu á samfélagsmiðlum undanfarin misseri. Skjáskot

Ný tískubylgja í förðun hefur farið eins og eldur í sinu á samfélagsmiðlum undanfarnar vikur. Tískubylgjan er kennd við samfélagsmiðlastjörnuna Meredith Duxbury og felst í því að nota allt að tíu pumpur af farða á andlitið sem svo er blandað út með fingrunum.

Hin 24 ára gamla Meredith Duxbury er ein skærasta stjarnan á samfélagsmiðlinum TikTok. Hún byrjaði á samfélagsmiðlinum árið 2020 en náði þó ekki vinsældum fyrr en hún fór að sýna frá óvenjulegri förðunarrútínu sinni. Netverjum blöskraði hve mikinn farða hún notar á andlit sitt og var það það sem kom henni á kortið. Í dag er hún með um 18 milljónir fylgjendur á TikTok en um 134 milljónir hafa horft á vinsælasta myndband hennar.

@meredithduxbury

Comment below what makeup trend you want me to try out next!

Get Into It (Yuh) - Doja Cat

Drekkir andlitinu í farða en útkoman er lýtalaus

Meredith gott sem drekkir andlitinu í þekjandi farða og setur svo gjarnan aðra umferð af þynnri farða yfir. Þessu blandar hún svo út með fingrunum.

„Ég er með mikið af freknum og til þess að hylja þær allar þarf ég að nota mikinn farða,“ útskýrði Meredith í einu TikTok myndbandinu. Þá segist hún nota fingurna frekar en bursta eða förðunarsvamp vegna þess að líkamshitinn frá höndunum bræði farðann sem gerir það að verkum að hann blandast betur við húðina.

Mörgum netverjum þykir aðferðin sláandi en Meredith segir áhorfendum að treysta ferlinu. Hún klárar förðunina með hyljara, púðri, skyggingu, kinnalit og augnförðun og kemur útkoman skemmtilega á óvart. Niðurstaðan er lýtalaus.

Stjörnurnar prófa aðferðina

Nú hefur aðferð Meredith orðið að tískubylgju á TikTok. Netverjar keppast við að endurskapa förðunina og hafa rúmlega 100 milljónir manns horft á myndbönd undir myllumerkinu #meredithfoundationshallange.

Embla Wigum, ein skærasta TikTok-stjarna okkar Íslendinga, er ein af þeim sem hefur prófað aðferðina og var hún nokkuð hrifin. „Ég er ekki að hata þetta. Húðin er alveg lýtalaus,“ sagði hún.

@emblawigum trying out @Meredith Duxbury foundation technique lowkey a slay #grwm #makeuptransformation original sound - Embla Wigum

Aðferðin virðist einnig hafa vakið forvitni Mario Dedivanovic, förðunarfræðings Kim Kardashian, sem prófaði aðferðina og sýndi frá því á TikTok. Þá hafa stjörnur á borð við Selenu Gomez einnig hoppað á vagninn og virðist útkoman hafa komið henni skemmtilega á óvart. Aðferðin er því gott dæmi um það að maður ætti ekki að dæma fyrr en maður hefur prófað.

@selenagomez I mean the tinted moisturizer is really giving @rarebeauty original sound - Selena Gomez

Tengdar fréttir

Hár­greiðslu­maður Kim Kar­dashian og Jenni­fer Lopez upp­ljóstrar leyndar­málunum

Chris Appleton, hárgreiðslumaður margra af skærustu stjörnum Hollywood, hefur vakið talsverða athygli á samfélagsmiðlinum TikTok undanfarið. Þar miðlar hann kunnáttu sinni áfram og uppljóstrar mörgum af sínum best geymdu hárleyndarmálum svo hver sem er geti umbreytt sér í Hollywood-stjörnu eða að minnsta kosti galdrað fram Hollywood-hár.

Förðunar­fræðingur Hail­ey Bieber leysir frá skjóðunni

Það má gera ráð fyrir því þessa dagana að allt sem fyrirsætan Hailey Bieber gerir verði að tískubylgju. Nýjasta æðið er sérstök förðunartækni sem förðunarfræðingur Bieber notast við þegar hún farðar hana.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.