Lífið

Svona var Söngkeppni framhaldsskólanna 2023

Eiður Þór Árnason skrifar
Keppnin fer fram í Hinu húsinu í Elliðaárdal.
Keppnin fer fram í Hinu húsinu í Elliðaárdal. vísir/vilhelm

Samband íslenskra framhaldsskóla heldur í Söngkeppni framhaldsskólanna í 33. sinn í kvöld í Hinu Húsinu, miðstöð ungs fólks.

Tónlistarveislan hefst klukkan 19:00 og má fylgjast með henni í beinni í spilaranum hér fyrir neðan og á sjónvarpsstöðinni Stöð 2 Vísi á myndlyklum Vodafone og Símans. Fulltrúar 26 framhaldsskóla stíga á svið að þessu sinni en ófáar tónlistarstjörnurnar hafa brotist fram á sjónarsviðið í þessari merkilegu keppni. 

Klippa: Söngkeppni framhaldsskólanna 2023

Emilía Hugrún Lárusdóttir, fulltrúi Fjölbrautarskóla Suðurlands, bar sigur úr býtum á síðasta ári ásamt hljómsveit núverandi og fyrrverandi nemenda skólans. 

Áhorfendur geta í kvöld valið næsta sigurvegara keppninnar í símakosningu og gilda atvkæði til helmings við dómnefnd.

Eftirfarandi skipa dómnefnd Söngkeppni framhaldsskólanna þetta árið:

Júlí Heiðar Halldórsson

Saga Matthildur

Hildur Kristín Stefánsdóttir

Þórunn Clausen


Tengdar fréttir

Sesselja Ósk sigraði Söng­keppni fram­halds­skólanna

Sesselja Ósk sigraði Söngkeppni framhaldsskólanna 2023 í kvöld fyrir hönd Fjölbrautaskólans í Garðabæ. Keppnin fór fram í Hinu húsinu í Elliðaárdal og tóku fulltrúar alls 24 framhaldsskóla þátt í keppninni sem haldin er af Sambandi íslenskra framhaldsskólanema. Sesselja Ósk söng lagið Turn Me On með bandarísku tónlistarkonunni Norah Jones.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.