Lífið

Katrín Hall­dóra og Hall­grímur eiga von á barni

Elma Rut Valtýsdóttir skrifar
Leik- og söngkonan Katrín Halldóra er ófrísk af sínu öðru barni.
Leik- og söngkonan Katrín Halldóra er ófrísk af sínu öðru barni. Facebook

Leik- og söngkonan Katrín Halldóra Sigurðardóttir og Hallgrímur Jón Hallgrímsson, trommuleikari Sólstafa, eiga von á sínu öðru barni saman. 

Katrín Halldóra greinir frá því á Facebook síðu sinni að von sé á lítilli stúlku í júlí. Hamingjuóskum rignir yfir parið.

Stúlkan er þeirra annað barn saman því fyrir eiga þau dreng sem fæddur er árið 2020. Hallgrímur á einn son úr fyrra sambandi.

Katrín Halldóra sló eftirminnilega í gegn í hlutverki söngkonunnar Ellýjar Vilhjálmsdóttur í söngleiknum Ellý sem sýndur var 220 sinnum í Borgarleikhúsinu fyrir nokkrum árum. Þessa dagana fer hún með hlutverk í sýningunni Hvað sem þið viljið í Þjóðleikhúsinu.


Tengdar fréttir

Katrín Halldóra og Hallgrímur eiga von á dreng

Leik- og söngkonan Katrín Halldóra Sigurðardóttir og Hallgrímur Jón Hallgrímsson, trommuleikari Sólstafa, eiga von á dreng í júní. Katrín Halldóra greindi frá þessu á tónleikum í Hörpu í gær.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.