„Úrslitakeppnin, er hún ekki bara byrjuð?“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 15. apríl 2023 22:07 Sigursteinn Arndal var sáttur með sigurinn á Selfossi. vísir/snædís Sigursteinn Arndal, þjálfari FH, var enn í miðju umróti tilfinninganna þegar hann mætti í viðtal eftir sigur sinna manna á Selfossi í kvöld, 30-29. „
Akkúrat núna líður mér frábærlega að vinna en ég ætla ekki að ljúga því að ég hafi verið rólegur,“ sagði Sigursteinn en eftir að leiktíminn var runninn út skaut Einar Sverrisson í stöng úr vítakasti þegar hann gat jafnað fyrir Selfoss. FH hafði verið þremur mörkum yfir þegar þrjár mínútur voru eftir en slapp með skrekkinn. „Ég veit eiginlega ekki hvað gerðist. Það er þannig ólga inni í mér að ég næ ekki utan um það núna. Hefurðu ekki séð þetta milljón sinnum? Úrslitakeppnin, er hún ekki bara byrjuð?“ FH-ingar voru alltaf með frumkvæðið í leiknum en gekk illa að sigrast á Vilius Rasimas sem átti stórleik í marki Selfyssinga. „Hann er frábær markvörður og sérstaklega í fyrri hálfleik fórum við illa með góð færi. Við fórum yfir það í hálfleik. Þetta eru tvö frábær lið en við hefðum átt að klára þetta fyrr. En þetta er bara úrslitakeppnin. Þú þarft að vera klár í þetta,“ sagði Sigursteinn. En hvað var hann sáttastur með hjá sínu liði í kvöld? „Í rauninni bara að halda alltaf áfram, sama hvað. Við gerðum fullt af mistökum og það voru taugar. Ég er stoltur af mínu liði og mörgum ungum leikmönnum að standast þetta og klára þetta,“ svaraði Sigursteinn.
Olís-deild karla FH UMF Selfoss Mest lesið Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Willum vill fara norsku leiðina Sport Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfubolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti Sakar lækni landsliðsins um loddaraskap Fótbolti „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Íslenski boltinn Bróðir Yamals slær í gegn á HM Fótbolti Aukinn viðbúnaður vegna sögu Englands og Argentínu Fótbolti „Þetta er svo hörmulegur dómur, án gríns“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Sjá meira