KR-ingar slógu 42 ára félagsmet í markaleysi á Hlíðarenda í gær Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. maí 2023 10:31 Theodór Elmar Bjarnason og félagar í KR finna ekki leiðina að markinu og hafa ekki gert það síðan 15. apríl. Vísir/Diego KR-ingar hafa ekki skorað í fjórum deildarleikjum í röð en það hefur aldrei gerst áður í nútímafótbolta eða frá því að deildin varð fyrst tíu liða árið 1977. KR-liðið hefur ekki skorað í 370 mínútur eða síðan að Benoný Breki Andrésson innsiglaði sigur í Keflavík 15. apríl síðastliðinn. Síðan þá hefur KR-liðið spilað fjóra leiki í röð án þess að ná að skora. Það sem meira er að allir þessir fjórir leikir hafa tapast. Mótherjar KR-liðsins hafa skorað tólf mörk í röð án þess að KR hafi náð að svara fyrir sig. Þetta er lengsta bið KR eftir deildarmarki frá því að deildin innihélt fyrst tíu lið en gamla félagsmet KR í nútíma fótbolta var orðið næstum því 42 ára gamalt. Fyrir þetta tímabil hafði lið undir stjórn Rúnars Kristinssonar aldrei spilað meira en tvo deildarleiki í röð án þess að skora mark. Nú er hins vegar félagsmetið fallið og þetta er orðið sögulega slæm frammistaða fyrir framan mark andstæðinganna. KR-ingar léku 346 mínútur án þess að skora deildarmark sumarið 1981 en þá bið endaði Óskar Ingimundarson biðina í leik á móti Víkingi. KR gerði tvö markalaus jafntefli í þessari löngu bið eftir marki í júní 1981. KR þurfti líka að bíða lengi eftir marki sumarið 1988 og líka sumarið 1977 þegar KR féll síðast úr efstu deild. Lengsta bið KR eftir deildarmarki á einu tímabili: 370 mínútur KR 2023 (enn í gangi) 346 mínútur KR 1981 342 mínútur KR 1988 331 mínúta KR 1977 Besta deild karla KR Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Enski boltinn FH - Stjarnan | Hefja tímann undir stjórn Arons Pálmarssonar Handbolti Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Formúla 1 Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Körfubolti Fleiri fréttir Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Hver var í flottustu treyjunni? Tufegdzic bræður til Malmö Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Draumurinn að rætast Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Myndaveisla: Á fimmta þúsund manns á stórleik KR og Víkings „Það er hrikalegt að sjá þetta“ „Í gær var ég að æfa nákvæmlega sama skot“ Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ „Gæti óskað þeim til hamingju með titilinn núna“ Mörkin úr stórslag KR og Víkings í lýsingu Gumma Ben Sveinn Gísli braut bein í toppslagnum KR - Víkingur 1-1| Hjartahnoð Arnórs Ingva á síðustu stundu Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Slær Aron markametið í kvöld? „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Sjáðu Stjörnuna klára Blika Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Sjá meira
KR-liðið hefur ekki skorað í 370 mínútur eða síðan að Benoný Breki Andrésson innsiglaði sigur í Keflavík 15. apríl síðastliðinn. Síðan þá hefur KR-liðið spilað fjóra leiki í röð án þess að ná að skora. Það sem meira er að allir þessir fjórir leikir hafa tapast. Mótherjar KR-liðsins hafa skorað tólf mörk í röð án þess að KR hafi náð að svara fyrir sig. Þetta er lengsta bið KR eftir deildarmarki frá því að deildin innihélt fyrst tíu lið en gamla félagsmet KR í nútíma fótbolta var orðið næstum því 42 ára gamalt. Fyrir þetta tímabil hafði lið undir stjórn Rúnars Kristinssonar aldrei spilað meira en tvo deildarleiki í röð án þess að skora mark. Nú er hins vegar félagsmetið fallið og þetta er orðið sögulega slæm frammistaða fyrir framan mark andstæðinganna. KR-ingar léku 346 mínútur án þess að skora deildarmark sumarið 1981 en þá bið endaði Óskar Ingimundarson biðina í leik á móti Víkingi. KR gerði tvö markalaus jafntefli í þessari löngu bið eftir marki í júní 1981. KR þurfti líka að bíða lengi eftir marki sumarið 1988 og líka sumarið 1977 þegar KR féll síðast úr efstu deild. Lengsta bið KR eftir deildarmarki á einu tímabili: 370 mínútur KR 2023 (enn í gangi) 346 mínútur KR 1981 342 mínútur KR 1988 331 mínúta KR 1977
Lengsta bið KR eftir deildarmarki á einu tímabili: 370 mínútur KR 2023 (enn í gangi) 346 mínútur KR 1981 342 mínútur KR 1988 331 mínúta KR 1977
Besta deild karla KR Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Enski boltinn FH - Stjarnan | Hefja tímann undir stjórn Arons Pálmarssonar Handbolti Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Taktík að taka á sig þessa hörðu refsingu Formúla 1 Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Körfubolti Fleiri fréttir Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Hver var í flottustu treyjunni? Tufegdzic bræður til Malmö Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Draumurinn að rætast Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Myndaveisla: Á fimmta þúsund manns á stórleik KR og Víkings „Það er hrikalegt að sjá þetta“ „Í gær var ég að æfa nákvæmlega sama skot“ Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ „Gæti óskað þeim til hamingju með titilinn núna“ Mörkin úr stórslag KR og Víkings í lýsingu Gumma Ben Sveinn Gísli braut bein í toppslagnum KR - Víkingur 1-1| Hjartahnoð Arnórs Ingva á síðustu stundu Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Slær Aron markametið í kvöld? „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Sjáðu Stjörnuna klára Blika Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Sjá meira