Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Sindri Sverrisson skrifar 16. október 2026 07:02 Telma Ívarsdóttir og Glódís Perla Viggósdóttir afhentu Ingibjörgu skemmtilega landsliðssamfellu með númeri Ingibjargar. Instagram/@ingibjorg11 Vinkonur Ingibjargar Sigurðardóttur í íslenska fótboltalandsliðinu komu henni skemmtilega á óvart nú þegar hún er komin sex mánuði á leið með sitt fyrsta barn.
Ingibjörg er leikmaður Freiburg í Þýskalandi og segir í færslu á Instagram að það sé erfitt að búa erlendis, í burtu frá fjölskyldu og vinum, á meðgöngunni. Þess vegna hafi frí heima á Íslandi um síðustu helgi gert henni afar gott og ástin og umhyggjan sem hún fann fyrir hreinlega gert hana orðlausa. Ingibjörg á sinn þátt í því að Ísland skuli nú vera aðeins einvígi við Portúgal frá því að komast á HM í fyrsta sinn. Vinkonur hennar úr landsliðinu áttu ekki í neinum vandræðum með að slá út Króatíu, samtals 9-0, en eiga mun erfiðara verkefni fyrir höndum í lok nóvember og byrjun desember gegn Portúgölum. Ingibjörg fór og hitti liðsfélaga sína í landsleikjatörninni og þær glöddu hana með skemmtilegri gjöf, eins konar landsliðssamfellu handa syninum sem væntanlegur er í heiminn. Samfellan var að sjálfsögðu merkt „MAMMA“ með númerinu 6 aftan á en Ingibjörg, sem leikið hefur 86 A-landsleiki, spilar í treyju númer 6. En það voru ekki bara vinkonurnar úr landsliðinu sem glöddu Ingibjörgu hér á landi því hún fékk líka óvænt steypiboð (e. baby shower) frá fleirum af sínum nánustu. View this post on Instagram A post shared by Ingibjorg Sigurdardottir (@ingibjorg11) „Mamma hans er ótrúlega þakklát fyrir þær“ „Orðlaus eftir algjörlega einstaka helgi heima 🥹🩵 Að finna alla ástina sem litla fjölskyldan okkar fékk á Íslandi gaf mér svo mikinn kraft fyrir þennan síðasta (!!) þriðjung meðgöngunnar. Að búa erlendis á meðgöngunni og hafa ekki fjölskylduna og vinina í kringum mig hefur stundum verið einmanalegt sem gerði þessa helgi enn sérstakari. 🤍 Og hversu heppinn er þessi litli strákur að eiga svona margar sterkar konur sem fyrirmyndir?! Mamma hans er ótrúlega þakklát fyrir þær, fyrir allar frábæru fyrirmyndirnar sem hún á í sínu eigin lífi og fyrir konurnar sem ruddu brautina á undan henni (sjá síðustu myndina),“ skrifaði Ingibjörg. Þar vísaði hún til myndar af landsliðskonunum sem komu Íslandi í fyrsta sinn á stórmót, á EM 2009, en þær voru heiðraðar í hálfleik á leiknum við Króatíu á Laugardalsvelli á þriðjudaginn.
Landslið kvenna í fótbolta Tengdar fréttir „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Gærkvöldið verður án efa eftirminnilegt fyrir Glódísi Perlu Viggósdóttur. Ekki nóg með að Ísland hafi unnið 5-0 sigur á Króatíu heldur spilaði fyrirliðinn sinn 150. leik í íslensku landsliðstreyjunni. 14. október 2026 07:31 Myndaveisla: Breið bros og dansspor í Dalnum Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta fagnaði vel á Laugardalsvelli í gærkvöld eftir 5-0 stórsigur gegn Króatíu og samtals 9-0 sigur í einvígi liðanna í HM-umspilinu. Ljósmyndarinn Anton Brink náði frábærum myndum af stemningunni. 14. október 2026 07:00 Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Körfubolti „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Körfubolti Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Fótbolti Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Fótbolti „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Fótbolti „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ Körfubolti Infantino baðst afsökunar en neitaði að svara fjölmiðlum Fótbolti Fleiri fréttir Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Infantino baðst afsökunar en neitaði að svara fjölmiðlum Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Fallegt Evrópukvöld fyrir Íslendingana Bournemouth nýtur lífsins á nýjum slóðum en Willum spilaði lítið Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Mikael meiddur af velli í Belgíu Orri nálægt sigurmarki á 90 sekúndum Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Vill draga Ronaldo aftur inn í landsliðið Hegðun erkifjenda þeirra ekki komið á óvart gegn Bayern München „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Leynilegt ráðabrugg gæti ógnað endurkjöri Infantino Mamdani skaut á Man City Lærir í Harvard meðan hann jafnar sig Sjáðu PSG refsa City, ótrúlegan viðsnúning Real og öll hin Amin fékk mynd af sér með skúrki Bayern Leikur liðs Elíasar færður vegna mótmæla Oft orðaður við United en kom með skýrt svar Freyr fann sig knúinn til að setja nýja reglu Bo Johansson er látinn Reynir að lægja öldurnar: „Eftir leikinn talaði ég í reiði og pirringi“ Örlög Elísabetar í höndum fyrrverandi markvarðar Liverpool Stúdentaóeirðir og táragas valda algjörri óvissu hjá liði Elíasar Sex marka sýning Villa og ótrúleg endurkoma Real Madrid Tvenna Haalands dugði skammt gegn PSG Guardiola sá versta hálfleik City á heimavelli í fjórtán ár Sjá meira
„Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Gærkvöldið verður án efa eftirminnilegt fyrir Glódísi Perlu Viggósdóttur. Ekki nóg með að Ísland hafi unnið 5-0 sigur á Króatíu heldur spilaði fyrirliðinn sinn 150. leik í íslensku landsliðstreyjunni. 14. október 2026 07:31
Myndaveisla: Breið bros og dansspor í Dalnum Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta fagnaði vel á Laugardalsvelli í gærkvöld eftir 5-0 stórsigur gegn Króatíu og samtals 9-0 sigur í einvígi liðanna í HM-umspilinu. Ljósmyndarinn Anton Brink náði frábærum myndum af stemningunni. 14. október 2026 07:00