Varð vitni að verstu martröð lýsandans á seinna undankvöldinu Kristín Ólafsdóttir skrifar 13. maí 2023 15:23 Gísli Marteinn Baldursson lýsir Eurovision fyrir Íslendingum, eins og fyrri ár. Eurovísir hitti hann úti í Liverpool. Vísir/Helena Gísli Marteinn Baldursson íslenski lýsandi Eurovision er kominn í stellingar fyrir úrslitin sem fram fara í Liverpool í kvöld. Hann segist enn eiga eftir fáeina góða brandara í handraðanum fyrir kvöldið – og lýsir sannri martröð Eurovision-lýsandans sem kollegi hans hér úti í Liverpool lenti í á seinna undankvöldinu á fimmtudag.
Eins og alþjóð er væntanlega meðvituð um komst Ísland ekki áfram í úrslit Eurovision þrátt fyrir frábæra frammistöðu Diljár í fyrrakvöld. Og það verður víst að halda Eurovision þó að Ísland taki ekki þátt. Eurovísir hitti Gísla Martein úti í Liverpool nú þegar aðalkvöldið nálgast óðfluga. Viðtalið við hann má finna í sjötta og síðasta þætti Eurovísis þetta árið hér fyrir neðan. „Stutta svarið er bara að Evrópa var ekki alveg jafnhrifin af þessu og Ísland var og það getur alltaf gerst,“ segir Gísli Marteinn, inntur eftir því hvort hann hafi einhverjar skýringar á gengi Íslands í ár. „Og núna bara dýrkuðum við Power og munum gera áfram um ókomna tíð. Og Evrópu fannst það örugglega fínt en ekki svo gott að þau vildu klappa það upp til að flytja í annað sinn. Og við eigum bara að taka því og ekkert vera fúl, hvorki út í okkur sjálf né Evrópu fyrir þetta.“ Óvæntir töfrar á fimmtudagskvöld Hann kveðst hafa rætt niðurstöðuna við lýsendur annarra þjóða sem hann hittir reglulega á fundum í Eurovision-höllinni. „Þau voru hissa að við skyldum ekki komast. En þau sögðu öll líka að það hefði verið bara í fyrrakvöld sem þau föttuðu hvað hún var góð. Þau höfðu ekki alveg kveikt á því þannig að það voru einhverjir töfrar í þessum performans hjá henni,“ segir Gísli Marteinn. Það vakti talsverða athygli í útsendingunni heima á Íslandi á fyrra undankvöldinu þegar skyndilega heyrðist hátt í andardrætti Gísla Marteins undir króatíska framlaginu. „Það var eins og ég væri annað hvort stórlega móðgaður eða mjög æstur yfir því að þeir færu á nærbuxurnar,“ segir Gísli Marteinn kíminn yfir atvikinu, sem á sér tæknilegar skýringar. „En málið var að ég vissi ekkert að það væri kveikt á hljóðnemanum mínum og það var búið að vera mikið tæknivesen, allt kerfið í höllinni hrundi rétt fyrir útsendingu og RÚV var með einhverja varaleið.“ Matareitrun á versta mögulega tíma Tæknin getur einmitt komið Eurovision-lýsanda í koll. En hver væri stærsta martröð lýsandans? Að segja eitthvað hræðilegt sem færi í loftið, segir Gísli Marteinn snöggur til svars. En hann nefnir líka annars konar martraðaraðstæður, sem kollegi hans hér í Liverpool þurfti að reyna á eigin skinni við lýsingu á seinni undankeppninni nú á fimmtudag. „Einn af lýsendunum fékk matareitrun, það er líka vond martröð fyrir lýsanda. Hann þurfti að hlaupa á milli, lögin eru náttúrulega bara þrjár mínútur og við erum ekki með klósett fyrir okkur. Við erum bara á almenningsklósettunum niðri og við erum öll búin að taka tímann, maður er tvær mínútur og 45 sekúndur að hlaupa á klósettið og til baka. Þannig að það er líka svolítil martröð ef eitthvað sem þú hefur borðað yfir daginn fer illa í magann á þér. Þannig að þær eru margar martraðirnar í lífi lýsandans, sérstaklega þegar er komið fram á laugardag eftir langan tíma hérna og lítinn svefn.“ Eurovísir er þáttur um Eurovision - á Vísi! Við kryfjum keppnina, komandi og liðnar, og eltum okkar fólk út til Liverpool. Fyrri þætti má nálgast hér.
Eurovision Eurovísir Tengdar fréttir Svæsnasta kvöldið í Eurovision-vikunni hingað til? Eurovision-goðsagnirnar Selma Björnsdóttir og Friðrik Ómar Hjörleifsson létu ekki sitt eftir liggja á Eurovision-vertíðinni sem nú stendur sem hæst í Liverpool. Í kringum þau hefur myndast stór og tryggur aðdáendahópur karlmanna sem þau hlakka til að hitta á hverju ári. Eurovísir fylgdi Selmu og Friðriki á æfingu í Euroclub, þar sem mesta og svæsnasta Eurovision-djammið fer fram. 12. maí 2023 21:01 Fengu drauminn loksins uppfylltan eftir þungbær svik í fyrra Tveir vinir sem sviknir voru um miða á Eurovision í fyrra hafa nú fengið ósk sína uppfyllta, og rúmlega það. Þeir eru mættir til Liverpool með ósvikna miða á úrslitakvöldið á morgun og voru einnig viðstaddir undanúrslitakvöldið á þriðjudag. Viðtal við félagana má horfa á neðar í fréttinni. 12. maí 2023 16:09 Bjóst við því að komast áfram „Þetta eru náttúrulega vonbrigði. Ég bjóst við því að komast áfram en þetta gekk ógeðslega vel og ég er bara mjög góð,“ segir Diljá Pétursdóttir, fulltrúi Íslands í Eurovision, innt eftir viðbrögðum við niðurstöðu kvöldsins. 11. maí 2023 23:30 Mest lesið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Matthías Már með krabbamein Lífið Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Lífið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Lífið Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Lífið Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Lífið Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Lífið Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um... Mean Girls? Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Matthías Már með krabbamein Risastór tappakollur í fallegri íbúð Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Nadine og Þórhildur byrja með nýtt hlaðvarp Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Misstu þrettán ára dóttur sína Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Karl Th. Birgisson borinn til grafar Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Tvíburasystur fæddu börn sama dag á sama sjúkrahúsi Unnur Borg og Gugga saman í paradís Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Bónorð í háloftunum: „Manifestaði draumamanninn“ Karl Th. jarðsunginn í dag Ástin blómstraði hjá Aroni Can og Ernu á Edition Danskur stórleikari þakklátur á Íslandi Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Hvað veistu um... Pólland? Pattra með pæju-padelmót Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par Sjá meira
Svæsnasta kvöldið í Eurovision-vikunni hingað til? Eurovision-goðsagnirnar Selma Björnsdóttir og Friðrik Ómar Hjörleifsson létu ekki sitt eftir liggja á Eurovision-vertíðinni sem nú stendur sem hæst í Liverpool. Í kringum þau hefur myndast stór og tryggur aðdáendahópur karlmanna sem þau hlakka til að hitta á hverju ári. Eurovísir fylgdi Selmu og Friðriki á æfingu í Euroclub, þar sem mesta og svæsnasta Eurovision-djammið fer fram. 12. maí 2023 21:01
Fengu drauminn loksins uppfylltan eftir þungbær svik í fyrra Tveir vinir sem sviknir voru um miða á Eurovision í fyrra hafa nú fengið ósk sína uppfyllta, og rúmlega það. Þeir eru mættir til Liverpool með ósvikna miða á úrslitakvöldið á morgun og voru einnig viðstaddir undanúrslitakvöldið á þriðjudag. Viðtal við félagana má horfa á neðar í fréttinni. 12. maí 2023 16:09
Bjóst við því að komast áfram „Þetta eru náttúrulega vonbrigði. Ég bjóst við því að komast áfram en þetta gekk ógeðslega vel og ég er bara mjög góð,“ segir Diljá Pétursdóttir, fulltrúi Íslands í Eurovision, innt eftir viðbrögðum við niðurstöðu kvöldsins. 11. maí 2023 23:30