„Ýmsar sviðsmyndir“ til skoðunar með frekari fjármögnun Alvotech
![Róbert Wessman, forstjóri og aðaleigandi Alvotech, segir félagið halda áfram að vinna náið með FDA til að fá samþykktar tvær fyrirliggjandi umsóknir um markaðsleyfi í Bandaríkjunum fyrir sitt helsta lyf. „Við erum reiðubúin að bregðast við mögulegum sviðsmyndum, þar með talið að leggja að nýju inn fyrstu markaðsleyfisumsóknina og að gangast hugsanlega undir aðra úttekt á framleiðsluaðstöðunni.“](https://www.visir.is/i/AB8F33BBDBCC81A8B09573CC5B07655FE4FC6439C9FA06500E435A5F8C6D1ACA_713x0.jpg)
Hlutabréfaverð Alvotech lækkaði mest um 15 prósent í viðskiptum í Kauphöllinni í dag eftir að tilgreint var að félagið væri að undirbúa að sækja sér aukið fjármagn vegna óvissu um samþykki markaðsleyfis í Bandaríkjunum fyrir sitt stærsta lyf en sú verðlækkun hafði gengið til baka að stórum hluta við lokun markaða. Félagið segist ekki geta á þessari stundu sagt til hvort ætlunin sé að leita mögulega til íslenskra fjárfesta eftir auknu fjármagni, en fjórir mánuðir eru síðan Alvotech lauk 20 milljarða hlutafjárútboði hér á landi þar sem þátttakendur voru einkum lífeyrissjóðir og hlutabréfasjóðir.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/AB8F33BBDBCC81A8B09573CC5B07655FE4FC6439C9FA06500E435A5F8C6D1ACA_308x200.jpg)
„Mikil óvissa“ um hvað Alvotech þarf að gera til að fá grænt ljós frá FDA
Áform Alvotech um að fara inn á Bandaríkjamarkað um mitt þetta ár eru í hættu vegna óvissu um hvenær FDA mun veita félaginu markaðsleyfi, að sögn erlendra greinenda, en skiptar skoðanir eru hvaða áhrif það kann að hafa – DNB lækkar verðmat sitt á félaginu en mælir enn með kaupum á meðan Citi segir fjárfestum að selja – og sumir álíta að tafir um einhverja mánuði muni ekki hafa mikil áhrif á markaðshlutdeild fyrirtækisins á árunum 2024 og 2025. Á óformlegum upplýsingafundum með innlendum fjárfestum hafa lykilstjórnendur Alvotech aðspurðir tekið fyrir þann möguleika að þörf verði á því á næstunni að sækja aukið hlutafé út á markaðinn.