Fertugur Bent skálaði við foss og naut í Hvammsvík Svava Marín Óskarsdóttir skrifar 22. maí 2023 13:00 Bent fagnaði fertugsafmælinu með vinum sínum í gær. Sjálfan afmælisdaginn ber svo upp á morgun. Ágúst Bent rappari fagnaði fjörutíu ára afmæli sínu í góðra vina hópi á flakki um suðvesturhornið í gær. Vinir hans sungu Stuðmannalag honum til heiðurs við Þórufoss.
Hópurinn fékk sér í gogginn í höfuðborginni áður en lagt var í hann í langferðabíl þar sem tónlist úr smiðju XXX Rotweilerhunda var spiluð og vel tekið undir. Meðal gesta í fögnuðinum voru vinir Bents úr Árbænum og rappsenunni. Erpur Eyvindarson, félagi Bents úr XXX Rotweilerhundum, var að sjálfsögðu í þrumustuði og það gilti sömuleiðis um Dóra DNA rímnaflæðismeistara. DJ Óli Dóri var á svæðinu, Bjarni Jónsson, York Underwood grínisti og Þorsteinn Lár Ragnarsson Rotweilerhundur og vallarþulur hjá Fylki svo einhverjir séu nefndir. Tótibje Ólidóri Vinirnir sungu afmælissönginn fyrir Bent vin sinn við Þórufoss og þar hljómuðu einnig valdar línur úr laginu Haustið '75 með Stuðmönnum. Þar er sungið um mann sem er ekkert upp á að klaga, edrú alla daga sem ávallt borgar meðlagið. Mátti merkja kaldhæðni í því lagavali enda allir við skál þegar lagið var sungið í góðu gríni. Hópurinn skellti sér svo í böðin hans Skúla Mogensen í Hvammsvík og virtist vera góð stemmning í hópnum sem taldi um 15-20 manns. Bent var til umfjöllunar í þáttunum Rapp í Reykjavík á Stöð 2 árði 2016.
Tímamót Tónlist Kjósarhreppur Mest lesið Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Lífið Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Lífið Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Lífið „Ég sef í gallabuxum“ Tíska og hönnun Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Lífið Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Lífið Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Lífið Þegar tónlistin heltók lögmanninn Lífið Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Lífið Sumarbókaveisla á Bylgjunni: Kemur alltaf gott samtal út frá bókum Lífið samstarf Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Emilíana Torrini selur einbýlishús á 250 milljónir „Aldrei of seint að gera hlutina“ „Þetta skiptir okkur mjög miklu máli“ Einmanalegt áhugamál fjögurra íslenskra stráka Krónprinsessan inn og út af sjúkrahúsi „Við höfum oftar en einu sinni fundið hann í fjöru“ „Núna stjórna stelpur landinu og strákar klippa hár“ Uppgötvuð á götum Barcelona Hvað veistu um... Snæfellsnes? Leikritið eigi sérstaklega erindi nú Manst þú eftir þessum sígildu sumarleikjum? Matthildur Margrét og Sigurður Hrannar eiga von á barni „Við notum þetta orð yfir sundið, kaffið, og ástina okkar“ Getur hermt fullkomlega eftir tugum fugla Myndaveisla: Tárin streymdu þegar Áslaug kvaddi Valin versti ljósmyndari heims Tíu hlutir sem þú vissir ekki um Hildi Björnsdóttur Vegglistaverkið í Vesturbæ stækkað Stjörnufans í eins árs afmæli „Rosaleg skömm fyrir mig á sínum tíma“ Ágústa Eva setur 170 milljónir á einbýlishúsið í Hveragerði Sjá meira