Lífið

Al­dís Amah verður ný rödd Voda­fone

Atli Ísleifsson skrifar
Aldís Amah tekur við hlutverkinu af leikarnum Vali Frey Einarssyni.
Aldís Amah tekur við hlutverkinu af leikarnum Vali Frey Einarssyni. Aðsend

Leikkonan Aldís Amah Hamilton hefur tekið við sem rödd Vodafone og mun því tala fyrir vörumerkið í auglýsingum fyrirtækisins. Aldís tekur við hlutverkinu af leikaranum Vali Frey Einarssyni sem hefur lesið inn á auglýsingar fyrirtækisins síðustu ár.

Í tilkynningu segir að Aldís Amah hafi verið að gera það gott í leikaraheiminum á síðustu árum og meðal annars verið tilnefnd sem leikkona ársins í aðalhlutverki á Eddu-verðlaunahátíðinni 2023 fyrir hlutverk sitt í spennuþáttaröðinni Svörtu sandar sem sýnd var á Stöð 2.

Haft er eftir Lilju Kristínu Birgisdóttur, forstöðumanni markaðs- og samskiptamála hjá Vodafone, að veruleg ánægja sé með að fá Aldísi Amah inn sem nýja rödd Vodafone. „Hún smellpassar við nýjan tón vörumerkisins. Svo er líka gaman að brjóta löngu tímabært blað, en Aldís er fyrsta konan sem er föst vörumerkjarödd fyrir fjarskiptafélag á Íslandi.“ 

Þá er haft eftir Aldísi að Vodafone hafi verið fyrsta símafyrirtækið sem hún hafi átt í viðskiptum við. „Ég er meira að segja ennþá með sama númerið. Ég er spennt og þakklát fyrir traustið. Það er mikil gjöf að fá að taka við af Vali og mun gera mitt besta til að fylla í hans flottu fótspor,“ segir Aldís Amah.

Raddirnar mætast á fjölum Borgarleikhússins

Greint var frá því í síðustu viku að Aldís Amah myndi fara með eitt aðalhlutverkanna í rokksöngleiknum Eitraðri lítilli pillu sem verður settur upp í Borgarleikhúsinu í upphafi næsta árs.

Þar mun Aldís Amah leika á móti Jóhönnu Vigdísi Arnardóttur, Hönsu, sem er með það að ferilskránni að vera rödd Ríkisútvarpsins. Má því segja að raddirnar muni leiða saman hesta sína í söngleiknum sem byggir á gríðarvinsælli plötu kanadísku söngkonunnar Alanis Morrisette, Jagged Little Pill, sem kom út árið 1995. 

Vísir er í eigu Sýnar.


Tengdar fréttir

Rokksöngleikur byggður á verðlaunaðri plötu

Borgarleikhúsið hefur tryggt sér sýningarrétt á rokksöngleiknum Eitruð lítil pilla eftir Alanis Morrissette og Diablo Cody. Söngleikurinn byggir á tónlist af plötu Alanis Morrissette, Jagged Little Pill, einni áhrifamestu plötu tíunda áratugarins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.