Ný verslun Eyesland á Keflavíkurflugvelli styðst við gervigreind Eyesland 26. maí 2023 14:21 Sigrún Andersen, framkvæmdastjóri Provision er í skýjunum með nýju Eyesland verslunina á Keflavíkurflugvelli. „Hér var mikið stuð og allir sammála um að vel hefði tekist til. Sjálfri finnst mér þetta vera ein flottasta gleraugnaverslun í heimi,“ segir Sigrún Andersen, framkvæmdastjóri Provision en splunkuný verslun undir merkjum Eyesland var opnuð í vikunni á Keflavíkurflugvelli.
Nýja verslunin er öll hin glæsilegasta og búin nýjustu tækni. Arkitektastofan Gláma Kím sá um hönnun og er grunntónninn íslenskt landslag og kyrrð. Þeir Gústi B. og Páll Orri á FM957 mátuðu sólgleraugnaúrvalið frá Balmain. „Við lögðum upp með að skapa svæði þar sem væri kyrrð og ró og fólk upplifði eitthvað allt annað en flugvallarumhverfi,“ útskýrir Sigrún. „Litaþemað er sótt til Krýsuvíkur, mjúkir tónar eins og myntublár og beislitað og mött áferð á öllu undirstrika vöruna sem sjálf er glansandi. Í loftinu er trefjadúkur svo hljóðvistin er góð og ljósin í loftinu minna skýjafarið og norðurljósin. Verslunin er stílhrein og fólk gengur inn í fallegan og þægilegan heim þegar það kemur hingað inn,“ segir Sigrún. Gervigreind mælir sjón „Hér eru gerðar miklar kröfur um hraða í þjónustu og gæði og það var gríðarlega skemmtilegt að vinna að þessu verkefni með Isavia og Richard Blurton hjá Gláma Kím. Við keyptum inn nýjustu tækni af sjónmælingartækjum með gervigreind sem er þau fyrstu sinnar tegundar á Íslandi en með gervigreind verða mælingarnar nákvæmari og fljótlegri en hægt hefur verið til þessa. Sjóntækjafræðingur er á staðnum í versluninni en við bjóðum einnig upp á þá nýjung að sjóntækjafræðingur staðsettur í bænum getur séð um að sjónmæla með fjarstýringu. Við getum því alltaf þjónustað viðskiptavini,“ útskýrir Sigrún. Berglind Festival og Þórunn Ívars máta sólgleraugu fyrir sumarið. Breytt úrval og gott verð „Við höfðum alltaf lagt mikla áherslu á framúrskarandi þjónustu og mjög breytt úrval af merkjum. Það er auðvitað taxfree hér í nýju versluninni og því mikill hagur að versla. Kaupin er hægt að undirbúa með heimsókn í verslunina í bænum. Við erum einnig með mjög metnaðarfullar heimasíðu, fyrir fríhöfnina og fyrir verslanir okkar í Reykjavík. Það ættu allir að geta fundið það sem þeir leita að,“ segir Sigrún. Eyesland býður breitt úrval af merkjum, meðal annars Valentino, Max Mara, Ray Ban, Gant, Balmain og fleiri Þær Sæunn Gísladóttir, Þóra Þórisdóttir, Rósa Steingrímsdóttir og Helga Kristinsdóttir létu sig ekki vanta í opnun Eyesland. Tónlistarmennirnir Óskar og Luiz sáu um að gleðja gesti með ljúfum tónum. Áhrifavaldarnir Alexndra Sif Nikulásdóttir og Þórunn Ívars skemmtu sér vel. Augnlæknarnir Ólafur Björnsson og Óskar Jónsson mættu að sjálfssögðu í opnun Eyesland. Hrafnhildur Kristjánsdóttir, Alda Kristinsdóttir og Þóra Gunnarsdóttir voru ánægðar með viðburðinn. Verslunin er öll hin glæsilegasta
Keflavíkurflugvöllur Gervigreind Verslun Mest lesið Lengsti klukkutími ævinnar Gagnrýni Fyrirsætan og Dallas-leikkonan Annabel Schofield látin Bíó og sjónvarp „Skelfileg væmni og tilfinningaklám“ eða „eitt það allra áhrifaríkasta“ Lífið Tóti fékk bílinn lánaðan frá Líf Magneudóttur Lífið Verður að fara inn í nýjan áratug með stæl Lífið „Til hamingju með daginn Brooklyn, við elskum þig svo mikið“ Lífið Tár eftir hverja sýningu Lífið Kattavinafélagið minnist dýravinarins Davíðs Lífið Slakur með 62 milljón króna hálsmen Tíska og hönnun „Búinn að setja miklu meira í þennan gám heldur en ég tók út“ Lífið Fleiri fréttir Markviss húðumhirða fyrir húð sem fær bólur Unglingar þurfa ekki sýrukrem! Á fermingarkvöldi Hagkaups er farið yfir málin Nærföt og náttföt rjúka út í nýrri vefverslun Lindex Farðinn sem endurvekur þig Spilaðu golf allt árið með Evrópuferðum Stjörnukokkurinn Adam Dahlberg mætir á Lólu Öskursyngja ABBA lögin með áhorfendum Taktu þátt í konudagsleik Vísis Frá kvíða til aukins sjálfstrausts Draumaferð til Kína um páskana Hárlos eftir fæðingu, tímabundið eða varanlegt? Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Sjá meira