Hluthafar Kerecis eiga von á um 150 milljarða greiðslu í lok næsta mánaðar
![Guðmundur Fertram Sigurjónsson, forstjóri og stofnandi Kerecis, og Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, en hann hefur setið í stjórn félagsins - fyrir hönd Laurene Jobs - frá árinu 2019.](https://www.visir.is/i/E6DF7534135636F15A9A2A3C35F0F0AA61D21AD8BA23011AC800EB702616E7FA_713x0.jpg)
Áætlað er að bróðurpartur söluandvirðis Kerecis, eða samtals jafnvirði um 150 milljarðar króna á gengi dagsins í dag, verði greiddur út til hluthafa félagsins strax í lok næsta mánaðar. Mikill meirihluti þeirrar fjárhæðar fer til íslenskra fjárfesta sem mun að óbreyttu selja þann gjaldeyri sem kemur til landsins fyrir krónur með tilheyrandi styrkingaráhrifum á gengið.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/E9104B75FA0A6A17791576A6EAD42AD9B44FA7421C47482D3B8B3D4913D0851E_308x200.jpg)
Lífsverk seldi í Kerecis rétt fyrir risasölu upp á 180 milljarða
Lífeyrissjóður Verkfræðinga, sem forstjóri og stofnandi Kerecis gagnrýnir harðlega fyrir að hafa sett sig ítrekað upp á móti kaupréttaráætlun félagsins, losaði um hlut sinn skömmu áður en fyrirtækið var selt til alþjóðlegs heilbrigðisrisa í lok síðustu viku fyrir nærri 180 milljarða. Tveir aðrir lífeyrissjóðir, sem komu fyrst inn í hluthafahópinn í fyrra, tvöfölduðu fjárfestingu sína í Kerecis á innan við einu ári.