Bylgjulestin mætir í Hafnarfjörð næsta laugardag Bylgjulestin 13. júlí 2023 14:57 Bylgjulestarbíllinn verður í miðbæ Hafnarfjarðar næsta laugardag. Mynd/Hulda Margrét
Bæjar- og tónlistarhátíðin Í hjarta Hafnarfjarðar heldur áfram í dag fimmtudag og stendur yfir til laugardags en Bylgjulestin ætlar einmitt að heimsækja fallega Hafnarfjörðinn næsta laugardag. Lestarstjórar Bylgjulestarinnar á laugardag verða Erna Hrönn, Ómar Úlfur og Vala Eiríks og verður Bylgjulestarbíllinn staðsettur fyrir aftan Bæjarbíó þar sem þau verða í beinni milli kl. 12 og 16. Erna Hrönn er einn lestarstjóra Bylgjulestarinnar næsta laugardag. „Við vonum að veðurblíðan haldi áfram að leika við okkur eins og síðustu laugardaga,“ segir Erna Hrönn. „Stemningin í bænum verður örugglega gríðarlega góð enda mikið um að vera en þar má auðvitað helst nefna tónlistarhátíðina frábæru Í hjarta Hafnarfjarðar.“ Hægt er að skoða dagskrá hátíðarinnar hér en Í hjarta Hafnarfjarðar hófst 29. júní og er haldin hverja helgi í júlí og lýkur fimmtudaginn 3. ágúst. Dagskrá hátíðarinnar fer fram í Bæjarbíói og á útisvæðinu bak við það en þar verða tvö stór tjöld. Bæjar- og tónlistarhátíðin Í hjarta Hafnarfjarðar hefur notið mikilla vinsælda í sumar. Bylgjulestin mætir í Hafnarfjörð á laugardag. Erna Hrönn segir gestalista laugardagsins vera ansi vel mannaðan af góðu fólki. „Til að að stikla á stóru þá tökum við púlsinn á bæjarbragnum með Rósu Guðbjarts bæjarstjóra, Palli Eyjólfs, framkvæmdastjóri Bæjarbíós, kíkir á okkur og skemmtilegt fólk úr ýmsum áttum kíkir við. Listafólkið verður á sínum stað og til dæmis verður okkar eini sanni Laddi gestur okkar. Við spjöllum einnig við Klöru Elías og Magna og munum mögulega skora á þau að grípa í hljóðfæri og sprella með okkur í Bylgjubílnum.“ Ómar Úlfur verður í beinni á Bylgjunni næsta laugardag ásamt Ernu Hrönn og Völu Eiríks. Mikið fjör verður í kringum Bylgjulestina og ýmislegt skemmtilegt verður í gangi eins og venjulega. Matarvagnar frá Götubitanum verða á staðnum, hoppukastalar frá Kastalar.is, Blaðrarinn mætir með blöðrurnar sínar, boðið verður upp á andlitsmálningu, leiki og skemmtun í boði samstarfsaðila Bylgjulestarinnar. Einnig verður boðið upp á skemmtilegan leik sem heitir Tengiru? en hann er leikur Bylgjulestarinnar í sumar. Kynntu þér leikinn nánar hér. Vala Eiríks, einn lestarstjóra Bylgjulestarinnar næsta laugardag, á auðvelt með að halda uppi fjörinu. Kíktu við og taktu þátt í fjörinu, svalaðu þorstanum með Appelsíni án sykurs, gæddu þér á góðgæti frá Nóa Síríus og skemmtu þér með okkur í boði Orku náttúrunnar, Heklu, Samgöngustofu, Vodafone og Nettó. Bylgjulestin, björt og brosandi um land allt í sumar
Bylgjan Bylgjulestin Tónlist Ferðalög Mest lesið Dua Lipa gekk að eiga sinn heittelskaða í dag Makamál Matt Brown er látinn Lífið Áslaug býður í partý Lífið „Sögulegt augnablik“ fyrir þýska klúbbamenningu Lífið Krakkatía vikunnar: Kóngur, kýr og mávagarg Lífið Bréf til ókunnugrar stúlku varð upphafið að nýju lífi á Íslandi Lífið Fékk nýtt tækifæri með nýra frá mömmu Lífið Moulin Rouge felld niður tvo daga í röð Lífið „Eins og að horfa á eftir börnunum sínum fara út í lífið“ Lífið Sér mest eftir fullyrðingum sínum um einhverfu Lífið Fleiri fréttir Ormsson með sjónvarpsmarkað í beinni útsendingu í kvöld Útivistarfatnaðurinn sem gerir íslenska sumarið betra Díllinn er nýtt app þar sem notendur finna bestu dílana Fiskikóngurinn fagnar stækkun með glæsilegri opnunarhátíð Heather Mills heldur fyrirlestur í Hagkaup Stórkostleg stemning á glæsilegri forsýningu Star Wars Hugarafl skilar nærri hálfum milljarði í samfélagslegan ávinning Svona færðu pallinn í toppstand fyrir sumarið Fulleldað sous vide lambakjöt er spennandi nýjung frá Kjarnafæði Sumir sofa eins og englar – gæti sængin verið leynivopnið? Næsta kynslóð sólarvarna fyrir andlit Einn stærsti rafbílaviðburður sumarsins Sumarveisla hjá Toyota í Kauptúni á laugardag Moroccanoil sér um glamúrinn á Eurovision Stuðningur sem skiptir raunverulega máli Betri svefngæði með bambus Meltingin eins og klukka og brennslan kikkaði í gang Hinn goðsagnakenndi óperusöngvari Sir Bryn Terfel kemur til Íslands Sjálfbær þróun kaupmannsins á horninu Bílahátíð ársins á Kletthálsi: Ofurtilboð í þrjá daga Þetta hefur gefið mér nýtt líf Sjá meira