Flugu beint frá Akureyri til Liverpool Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. júlí 2023 16:00 KA fagnaði vel sigrium á Connah's Quay Nomads í fyrri leiknum. Vísir / Diego KA og velska félagið Connah's Quay Nomads eiga það sameiginlegt að spila heimaleiki sína í Evrópukeppninni ekki á sínum vanalega heimavelli.
KA menn eru komnir til Bretlands þar sem þeir mæta velska liðinu í undankeppni Sambandsdeildarinnar annað kvöld. Athygli vekur að KA liðið flaug beint frá Akureyri til Liverpool. Oft hafa norðanliðin þurft að ferðast í fimm tíma suður til Keflavíkur áður en flogið var út en leikmenn KA sluppu við það að þessu sinni. Það er síðan ekki mjög langt frá John Lennon flugvellinum í Liverpool suður til Oswestry þar sem leikurinn fer fram. KA er í góðum málum eftir 2-0 sigur á Connah's Quay Nomads í fyrri leiknum sem fór reyndar ekki fram á Akureyri heldur í Grafarholtinu. Leikurinn annað kvöld fer fram á Park Hall sem er í Englandi en ekki í Wales. Nomads liðið þarf eins og KA að spila leikinn annars staðar en á heimavelli sínum út af kröfum UEFA um leikvelli í Evrópukeppni en leikurinn fer fram á heimavelli The New Saints liðsins. Þrátt fyrir að leikurinn fari fram í Englandi þá er mjög stutt í landamærin og þar með yfir til Wales. Connah's Quay Nomads spilar vanalega heimaleiki sína í Flint sem er við norðurströnd Wales. Þeir þurfa aftur á móti ekki að ferðast eins langt og KA-menn þurftu að gera í heimaleikinn sinn. Leikur Connah's Quay Nomads og KA hefst klukkan 18.00 annað kvöld og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 5. View this post on Instagram A post shared by Knattspyrnufélag Akureyrar (@kaakureyri)
Sambandsdeild Evrópu KA Mest lesið Sauð upp úr og Bjarka fleygt í jörðina Handbolti Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Íslenski boltinn Albert sagður stefna í höfuðborgina Fótbolti Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Enski boltinn Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Enski boltinn Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Enski boltinn Scheffler tryggði sér 1.200 milljónir og toppaði Tiger Golf Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta Íslenski boltinn „Veit að það á enginn séns í mig í þessari deild“ Íslenski boltinn Einn sá besti snýr aftur Sport Fleiri fréttir Nýtur frelsis undir stjórn Mourinho Stjórnandi Liverpool „til skammar“ Ömurleg aukaspyrna Tel: „Er líffræðilega hægt að útskýra þetta?“ Albert sagður stefna í höfuðborgina „Sköpuðum færi eftir færi allan leikinn“ „Stálheppnir að ná í þetta stig“ Sjáðu Frederik refsað grimmilega fyrir töf Sjáðu þrennu Bruno og veisluna á Brúnni Uppgjörið: Valur - ÍA 2-2 | Baldvin jafnaði metin fyrir Skagamenn á síðustu stundu Mikael mátti þola tap á meðan bróðir hans skoraði Vöktu aðdáun Margrétar Láru: Sigruðust á krabbameini og elska fótbolta „Veit að það á enginn séns í mig í þessari deild“ „Eiður hefur verið fyrirmyndin mín síðan ég var krakki“ Sjáðu skalla Hjartar og allt tryllast Uppgjör: Fram - KA 2-2 | Fram náði í stig FH - Keflavík 2-1 | Fjarlægjast fallsætin Bruno bjó til sýningu á Old Trafford Stjörnur Real Madrid léku sér í stórsigri á Malaga Ásdís Karen að fara til AIK „Stoltur af orkustiginu miðað við aðstæður“ „Getum ekki farið með bænir og treyst á önnur úrslit“ Uppgjörið: Valur - FH 2-2 | Lillý Rut tryggði Val dramatískt stig og gerði FH skráveifu Ísak Snær skoraði í svekkjandi jafntefli Félagsskiptaglugginn búinn að mynda hringrás Dramatískur markaleikur á Brúnni Stuðningsmenn Everton fengu félagið til að halda ungstirninu sínu Messi skoraði fjögur í stórsigri Inter Miami Sjáðu mörkin í rosalegum endurkomusigri Fram Vann í Viltu vinna milljón og fær nú að mæta Man. Utd Reyndi að nappa treyju Isaks af börnum Sjá meira