Lífið

Love Is­land stjörnur trú­lofaðar

Máni Snær Þorláksson skrifar
Molly-Mae Hague og Tommy Fury kynntust í raunveruleikaþættinum Love Island og eru nú búin að trúlofa sig.
Molly-Mae Hague og Tommy Fury kynntust í raunveruleikaþættinum Love Island og eru nú búin að trúlofa sig. Getty/GC Images

Love Island stjörnuparið Molly-Mae Hague og Tommy Fury eru trúlofuð. Tommy fór á skeljarar á spænsku eyjunni Ibiza um helgina en fjögur ár eru síðan þau kynntust í raunveruleikaþáttunum. 

Áhrifavaldurinn Molly-Mae og atvinnuboxarinn Tommy lentu í öðru sæti í fimmtu þáttaröð raunveruleikaþáttanna Love Island árið 2019. Þau Amber Gill og Greg O'Shea stóðu uppi sem sigurvegarar í þáttaröðinni. Þau Amber og Greg hættu þó saman einungis fimm vikum eftir að dvölinni á ástareyjunni lauk.

Síðan eru liðin fjögur ár og samband Molly-Mae og Tommy er ennþá í fullu fjöri. Á síðasta ári greindu þau frá því að þau ættu von á barni sem fæddist svo í janúar á þessu ári.

Barnið fékk nafnið Bambi Hague Fury og var með í för þegar Tommy bað um hönd Molly-Mae sem sagði já. Þau birtu saman myndband af trúlofuninni á samfélagsmiðlinum Instagram en þar hefur fagnaðaróskum rignt yfir parið.

„Sönnun þess að Love Island raunverulega virkar,“ segir svo í einni athugasemd við myndbandið sem sjá má hér fyrir neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.