Bylgjulestin verður á Húsavík næsta laugardag Bylgjulestin 27. júlí 2023 14:37 Það verður mikið fjör á hafnarsvæðinu á Húsavík næsta laugardag þegar Bylgjulestin mætir í heimsókn. Ómar Úlfur er annar lestarstjóra Bylgjulestarinnar næsta laugardag. Lokaáfangastaður Bylgjulestarinnar þetta sumarið er Húsavík en þær ætlar Bylgjubíllinn að koma sér vel fyrir á hafnarsvæðinu næsta laugardag, 29. júlí.
Lestarstjórar Bylgjulestarinnar næsta laugardag verða þeir Svali Kaldalón og Ómar Úlfur en Bylgjan verða í beinni útsendingu frá kl. 12-16. „Eins og venjulega fáum við til okkar góða gesti,“ segir Svali Kaldalóns, annar lestarstjóra Bylgjulestarinnar. Svali Kaldalón er annar lestarstjóra Bylgjulestarinnar næsta laugardag ásamt Ómari Úlfi. Þeir taka á móti fjölda góðra gesta og verða í beinni útsendingu frá kl. 12-16. „Kristján Viðar, söngvari Greifanna, mætir í spjall en sveitin var stofnuð á Húsavík á sínum tíma. Söngkonan Birgitta Haukdal mætir einnig í spjall og Snæbjörn Ragnarsson úr Skálmöld, eða Bibbi eins og hann er alltaf kallaður, mætir líka í heimsókn. Hvalaskoðun á sterkar rætur á Húsavík og við ætlum aðeins að kynna okkur hana ásamt gönguskíðasögu Húsavíkur en hún nær um 250 á aftur í tímann, ótrúlegt en satt. Við fáum einnig til okkar Örlyg Hnefil, manninn á bak við Eurovision-safnið á Húsavík og Ja ja Ding Dong-barinn og svo ætlum við að skoða hvaðan þessir blessuðu gullfiskar koma sem eru í heitu tjörninni í bænum. Svo er aldrei að vita nema fleiri góðir gestir bætist í hópinn.“ Bylgjulestin verður á hafnarsvæðinu á Húsavík á laugardag. Þar verða líka matarvagnarnir Dons Donuts, Silli Kokkur, La Buena Vida og Pop Up Pizza, tvö tívolí, boðið er upp á Nóakroppskast og bílasýning frá Heklu og margt fleira. Það verður án efa mikið fjör á hafnarsvæðinu laugardag. Matarvagnarnir Dons Donuts, Silli Kokkur, La Buena Vida og Pop Up Pizza verða á staðnum með ljúffengan mat. Boðið verður upp á tvö tívolí, Nóakroppskast, bílasýning frá Heklu og gjafapoka frá Bylgjunni.Fjölskyldudagskrá verður í bænum alla helgina með froðurennibraut, tónleikum, flugeldasýningu og allskonar glensi! Kíktu við og taktu þátt í fjörinu. Svalaðu þorstanum með Appelsíni án sykurs, gæddu þér á góðgæti frá Nóa Síríus og skemmtu þér með okkur í boði Orku náttúrunnar, Heklu, Samgöngustofu, Vodafone og Nettó. Bylgjulestin, björt og brosandi um land allt í sumar.
Bylgjan Bylgjulestin Ferðalög Mest lesið Dýrðardagur í Kenýa endaði með bónorði Lífið Eins og í tannlæknastól án deyfingar: Dauðar laglínur á Myrkum músíkdögum Gagnrýni Úr söngvakeppni í fegurðarsamkeppni Lífið Bati hjálpar öðrum: „Hann var með geðsjúkdóm og leiddist út í fíkn“ Áskorun Laufey gæti orðið tvöfaldur Grammy-verðlaunahafi í nótt Lífið Kynlíf á ekki að vera vont Lífið Fékk „karlrembu, transfóbíu og rasisma“ í flasið á skurðstofunni Lífið Höfðu loks efni á uppsetningu eftir íbúðarkaupin Lífið Krakkatían: Gott kvöld, handboltinn og Tene Lífið Ellefu milljónir fyrir óskrifaða óperu Menning Fleiri fréttir Fermingardagurinn er stór dagur Skilnaður „ógeðslega erfitt fyrirbæri“ en til eru verkfæri sem hjálpa Batinn kom úr ólíklegri átt - Fegrunarmeðferð varð lykillinn að bættri heilsu „Geðrækt þarf ekki að vera flókin“ 43 ára kvikmyndasaga kvödd Draumaferðin gæti verið nær en þú heldur Hyalúrónsýra, kraftaverkaefni nútímans Hafa umbreytt lífsskilyrðum fólks Frank Sinatra, Dean Martin og Sammy Davis Jr. lifna við í Hörpu Góðgerlar fyrir jafnvægi á hverju æviskeiði Biostrength er tæknibylting í styrktarþjálfun Sjá meira