Vörðu tveimur vikum á stýri flutningaskips Samúel Karl Ólason skrifar 2. ágúst 2023 11:05 Mennirnir fjórir vörðu tveimur vikum á stýri flutningaskips og notuðu net til að falla ekki í sjóinn. Alríkislögregla Brasilíu Lögregluþjónar í Brasilíu björguðu nýverið fjórum mönnum frá Nígeríu sem vörðu tveimur vikum á stýri flutningaskips. Þeir kláruðu matarbirgðir sínar og vatn á tíunda degi en héldu lífi með því að drekka sjó.
Mennirnir héldu að þeir væru á leið til Evrópu er þeir lögðu af stað í síðasta mánuði en þess í stað ferðuðust þeir 5.600 kílómetra yfir Atlantshafið. Tveir þeirra hafa beðið um hæli í Brasilíu en tveir báðu um að vera fluttir aftur til Nígeríu. Roman Ebimene Friday og Opemipo Matthew Yeye hafa báðir sótt um hæli í Brasilíu og hafa rætt við fjölmiðla. Í frétt Guardian er haft eftir Friday, einum mannanna, að hann hafi fengið vin sinn til að róa með sig aftan að flutningaskipi sem var við bryggju í Lagos í Nígeríu. Það hafi þó komið honum á óvart að þrír menn höfðu komið sér fyrir á stýrinu áður en hann gerði það. Hann hafði aldrei hitt þessa menn áður og sagðist óttast að þeir myndu kasta honum í sjóinn. Mennirnir komu neti fyrir yfir stýrinu og bundu sig við það. Þannig komust þeir hjá því að falla í sjóinn en þeir létu einnig lítið fyrir sér fara af ótta við að áhöfn skipsins myndi finna þá og kasta þeim í sjóinn. Yeye segir að flóð hafi eyðilagt bú hans fyrr á árinu og því hafi hann reynt að flýja til Evrópu. Hann segir ferðalagið hafa verið gífurlega hættulegt og að hann hafi verið lafandi hræddur allan tímann. Hann vonast nú til þess að fjölskylda hans geti fylgt honum eftir til Brasilíu, fái hann hæli þar.
Nígería Brasilía Flóttamenn Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Sjá meira