Rashford ætlar að slá markamet Rooneys Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 3. ágúst 2023 16:01 Wayne Rooney og Marcus Rashford léku saman hjá Manchester United og enska landsliðinu. getty/Robbie Jay Barratt Marcus Rashford stefnir á að slá markamet Waynes Rooney hjá Manchester United. Rooney hefur átt metið síðan 2017.
Rashford hefur skorað 123 mörk í 359 leikjum fyrir United og vantar 131 mark til að slá met Rooneys. Hinn 25 ára Rashford skrifaði nýverið undir fimm ára samning við United. „Vonandi slæ ég met Rooneys,“ sagði Rashford í hlaðvarpi Garys Neville, the Overlap. „Þú veist aldrei hvað gerist en mínar ær og kýr eru að skora og leggja upp mörk. Það er möguleiki að þetta gerist. Ég hef talað við Rooney um þetta og hann vill að ég nái þessu. Hann segir að það verði gott ef ég geri það þar sem ég er uppalinn hjá félaginu. Vonandi fæ ég tækifæri til að reyna að ná þessu.“ Rashford skoraði þrjátíu mörk í 56 leikjum fyrir United á síðasta tímabili og ætlar að gefa enn meira í á næsta tímabili. Hann vonast jafnframt til þess að sleppa við meiðsli. „Fyrir síðasta tímabil stefndi ég alltaf á tuttugu mörk sem er gott fyrir kantmann. En á síðasta tímabili skoraði ég þrjátíu mörk og ég verð að stefna hærra,“ sagði Rashford. „Undir lok síðasta tímabils var ég í vandræðum vegna meiðsla og var ekki alveg í stuði og þá fækkaði mörkunum. Ef ég næ að halda mig frá þeim finnst mér ég geta náð 35-40 mörkum.“ United mætir Wolves í 1. umferð ensku úrvalsdeildarinnar um þarnæstu helgi.
Enski boltinn Mest lesið Norska landsliðið flúði hótelið sitt Fótbolti Haaland keypti uppstoppuð nagdýr á hótelherbergið Fótbolti Ingibjörg barnshafandi Fótbolti Ver afskipti Trumps og segir dómarann vafasaman Fótbolti Þingkonan ræðst aftur á Mbappé og eftirmyndir af honum brenndar Fótbolti Lionel Messi: „Ég var mjög reiður“ Fótbolti Stjarna Marokkó ekki með í kvöld Fótbolti Haaland orðinn stærri en Manchester City Enski boltinn Bara einn í flugvélinni heim af HM Sport Úkraínsk tennisstjarna gagnrýnir ákvörðun IOC: „Þetta er hræðilegt“ Sport Fleiri fréttir Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Tilboði Arsenal í lykilmann Newcastle United hafnað Í læknisskoðun á HM og á leið til Man. City fyrir svimandi upphæð Fær himinhá laun hjá ungu félagi sem stefnir hátt Onana aftur að láni frá Man. Utd Sjá meira