Níu mörk í sex leikjum og Messi og félagar á leið í bikarúrslit Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 16. ágúst 2023 08:31 Lionel Messi heldur áfram að raða inn mörkum í Bandaríkjunum. Mitchell Leff/Getty Images Argentínski knattspyrnumaðurinn Lionel Messi, einn besti knattspyrnumaður sögunnar, hefur heldur betur farið vel af stað hjá nýju félagi eftir að hann gekk í raðir Inter Miami frá PSG. Hann skoraði sitt níunda mark fyrir félagið er liðið mætti Philadelphia Union í undanúrslitum bikarsins í nótt.
Þetta var aðeins sjötti leikur Messi fyrir Inter Miami síðan hann gekk í raðir félagsins og hefur hann því skorað 1,5 mörk að meðaltali í leik. Messi skoraði annað mark liðsins í nótt á 20. mínútu leiksins með þrumuskoti langt fyrir utan teig eftir að Josef Martinez hafði komið Inter Miami í forystu strax á þriðju mínútu. What can't he do?! 🐐Make it NINE goals in six games for Leo Messi. pic.twitter.com/HLf3zBFTmV— Major League Soccer (@MLS) August 15, 2023 Það var svo annar fyrrverandi leikmaður Barcelona, Jordi Alba, sem skoraði þriðja mark Inter Miami í uppbótartíma fyrri hálfleiks og staðan var því 3-0 þegar liðin gengu til búningsherbergja. Alejandro Bedoya minnkaði hins vegar muninn fyrir Philadelphia-liðið þegar um stundarfjórðungur var til leiksloka áður en David Ruiz gulltryggði 4-1 sigur Inter Miami. Inter Miami er því á leið í bikarúrslit eftir sigurinn þar sem liðið mætir Nashville SC aðfararnótt sunnudags um komandi helgi.
Bandaríski fótboltinn Mest lesið Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Fótbolti KR - Víkingur 1-1| Arnór Ingvi bjargaði stigi fyrir KR á lokasekúndunni Íslenski boltinn Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Íslenski boltinn Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Íslenski boltinn „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Enski boltinn Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Íslenski boltinn Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Íslenski boltinn McTominay í hjartaaðgerð Fótbolti Ensku félögin með bókhaldsbrellur Enski boltinn Sveindís skoraði í langþráðum sigri Fótbolti Fleiri fréttir Albert til Lazio og kaupákvæði fylgir með Lið Salah þjálfaralaust eftir furðulega daga Íslendingalið Brann hlaut þungan skell Man ekki eftir Chelsea-liðinu svona lítið með boltann KR - Víkingur | Stærsti leikur tímabilsins Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik City borgar 125 milljónir punda fyrir Enzo Slær Aron markametið í kvöld? McTominay í hjartaaðgerð „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Mbaye til Aston Villa Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Albert lánaður til Lazio Ensku félögin með bókhaldsbrellur Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Arteta vill bæta við hópinn í dag Gata nefnd í höfuð Salah í Tyrklandi „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sjáðu Stjörnuna klára Blika Sveindís skoraði í langþráðum sigri Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Barcelona með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Vandræði Sønderjyske halda áfram þegar liðið tapaði manni færri Sjá meira