Fótbolti

Kjartan meiddist illa og verður lengi frá

Aron Guðmundsson skrifar
Kjartan í leik með Brann
Kjartan í leik með Brann Mynd; Brann

Tímabilinu hjá, Kjartani Má Kjartanssyni, leikmanni Brann og undir 21 árs landsliðs Íslands, er að öllum líkindum lokið eftir að hann meiddist illa á æfingu. Hann er nú þegar búinn í aðgerð vegna meiðslanna.

Brann greinir frá þessu í tilkynningu en Kjartan hefur nú þegar farið í aðgerð vegna meiðslanna og verður frá næstu mánuðina. 

„Hann meiddist alvarlega á hné og kom upp bráðatilfelli á æfingu. Rannsóknir urðu til þess að Kjartan þurfti að gangast undir aðgerð samdægurs. Aðgerðin gekk vel og er endurhæfing nú hafin. Við búumst hins vegar við að tímabilinu sé lokið hjá honum,“ segir í tilkynningu Brann 

Kjartan gekk í raðir Brann frá Aberdeen í sumar og var hluti af íslenska undir 21 árs landsliðinu sem tryggði sér sæti í umspili fyrir EM á dögunum. Íslands mun þar mæta Grikklandi í einvígi um laust sæti á EM.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×