Íhugar að skipta um landslið Smári Jökull Jónsson skrifar 10. september 2023 11:31 Harvey Barnes skoraði í fyrsta leik sínum með Newcastle í ensku úrvalsdeildinni. Vísir/Getty Harvey Barnes veltir því nú fyrir sér að skipta um landslið og spila fyrir hönd Skotlands. Barnes hefur leikið einn landsleik fyrir England en skoskur bakgrunnur hans opnar á möguleika á skiptum.
Harvey Barnes lék um árabil með Leicester í ensku úrvalsdeildinni en var í sumar keyptur af Newcastle eftir að Leicester féll niður í næst efstu deild. Barnes hefur byrjað ágætlega fyrir lærisveina Eddie Howe og skoraði meðal annars í 5-1 sigri liðsins á Aston Villa í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar. Tækifærin með enska landsliðinu hafa hins vegar verið af skornum skammti hjá Barnes sem á fjölmarga leiki að baki með yngri landsliðum. Hann lék einn landsleik árið með Englandi gegn Wales árið 2020 þar sem hann kom inn sem varamaður en hefur ekki verið valinn síðan þá. Harvey Barnes considering switching from England to Scotland.[The Times] pic.twitter.com/De3MBX06RO— Footy Accumulators (@FootyAccums) September 10, 2023 Nú greinir Daily Mail hins vegar frá því að Barnes íhugi að færa sig um set í landsliðsboltanum. Afi hans og amma í móðurætt eru frá Skotlandi og Barnes gæti spilað fyrir skoska landsliðið í framtíðinni. Skotar hafa spilað frábærlega í undankeppni Evrópumótsins og hefur unnið sigur í öllum fimm leikjum sínum í riðlinum til þessa. Meðal annars 2-0 sigur á Spánverjum í mars. Svo skemmtilega vill til að Skotland og England mætast í æfingaleik á þriðjudag og verður forvitnilegt að sjá hvort Barnes lætur sjá sig á leiknum og þá hvoru megin í stúkunni hann verður.
EM 2024 í Þýskalandi Mest lesið „Gríðarlega særandi að hlusta á þetta“ Sport Ísland - Króatía 5-0 | Íslensk einstefna á Laugardalsvelli Fótbolti Gáfu ekki upp hundraða milljóna greiðslu til Infantino Fótbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti Atlético yfir í 89 mínútur og raunir United-manna aukast Fótbolti Hákon og félagar máttu sín lítils þegar ensku meistararnir skiptu um gír Fótbolti Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Handbolti Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Íslenski boltinn Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Handbolti Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Nítján ára Frakki þakkaði Lampard fyrir traustið með stórleik Náð að búa til „við á móti öllum“-stemningu Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas „Ótrúleg tenging á milli þeirra“ Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Sjáðu mörkin: Sekt City sló leikmenn ekki út af laginu Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Fúll heim af gamla heimavellinum Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Segir Barcola ekki í vandræðum Kyssti Bentancur eftir rauða spjaldið Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Sjáðu enn eitt markið hjá Andra Lucasi Dramatík á Portman Road Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Henderson í stuði í stórsigri Magnað mark dugði fyrir sigri Kúvending í máli uppljóstarans sem óttast um líf sitt Áttu í sáttaviðræðum við ensku úrvalsdeildina „Hvernig dirfast þeir að skemma eitthvað sem er hluti af DNA þessa lands“ Gakpo og Isak missa af stórleiknum Setja félagið á sölu tveimur árum eftir kaup Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Sjá meira