Þrjú ungbörn fundust látin í kjallara í Póllandi Lovísa Arnardóttir skrifar 17. september 2023 08:51 Vitni verða yfirheyrð næstu daga og börnin krufin í dag. Vísir/EPA Tvö voru handtekin á föstudag og kærð fyrir manndráp og sifjaspell. 54 ára karlmaður og tvítug dóttir hans. Þrjú ungbörn fundust látin á vettvangi. Málið er enn til rannsóknar.
Lík þriggja ungbarna fundust í kjallara í hús í Czerniki í norðurhluta Póllands á föstudag. Pökkuð í poka og jörðuð. Tvö voru handtekin á vettvangi. Karlmaður á sextugsaldri og tvítug dóttir hans. Greint er frá á pólska miðlinum Radio Gdansk. Á pólskum miðlum segir að við handtöku hafi í fyrstu aðeins eitt látið ungbarn fundist en eftir að feðginin voru handtekin fundust tvö til viðbótar við leit, á föstudag og svo á laugardag. Maðurinn og stúlkan hafa bæði verið kærð fyrir manndráp og sifjaspell. Maðurinn er grunaður um að hafa brotið á dóttur sinni kynferðislega. Stúlkan er talin móðir í það minnsta eins barnsins. Lögregla á vettvangi við heimili feðginanna. Mikill viðbúnaður er á vettvangi og málið enn til rannsóknar. Vísir/EPA Börnin verða samkvæmt pólska miðlinum TVN24 öll krufin í dag, sunnudag. Mikill viðbúnaður hefur verið á vettvangi alla helgina en þar hefur lögregla notað til dæmis 3D skanna og hunda við leit. Vitni verða næst yfirheyrð en málið er áfram til rannsóknar. Haft er eftir Mariusz Duszyński frá saksóknaraembættinu í Gdansk að konan hafi verið kærð fyrir manndráp og sifjaspell. Hann segir hana eiga yfir höfði sér lífstíðarfangelsi vegna manndrápsins en þriggja til fimm mánaða fangelsisvist vegna sifjaspellsins. Maðurinn hefur verið kærður fyrir sömu glæpi en hann er grunaður um að hafa brotið á tveimur dætrum sínum, þeirri sem var handtekin auk annarrar.
Pólland Ofbeldi gegn börnum Kynferðisofbeldi Mest lesið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Innlent Fleiri fréttir Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Sjá meira