Lífið

Til­einkar tón­smíðarnar látnum vini

Íris Hauksdóttir skrifar
Hljómsveitin SoundThing gaf út lagið Have You Seen The Place.
Hljómsveitin SoundThing gaf út lagið Have You Seen The Place. Anna Maggý

Hljómsveitin SoundThing gaf fyrr í dag út smáskífuna Have You Seen The Place. Lagahöfundurinn og gítarleikari sveitarinnar, Hjörleifur Björnsson tileinkar tónsmíðarnar látnum vini sínum.  

Hægt er að hlusta á lagið í spilaranum hér að neðan:

Klippa: SoundThing - Have You Seen The Place

„Það var hann sem gaf mér fyrsta gítarinn sem barn og kenndi mér að spila á hann. Án hans væri þessi tónlist ekki til,“ segir Hjörleifur. Ásamt honum er hljómsveitin skipuð þeim Ástu Sigríði Sveinsdóttir söngkonu og lagahöfundi, Erlu Stefánsdóttir bassaleikara, söngkonu og lagahöfundi og Valtýri Sigurðssyni trommara og lagahöfundi.

SoundThing sem hljómsveit á sér langan aðdraganda. „Við og Ásta þekkjumst úr barnæsku og innblástur tónsmíðanna koma frá sameiginlegum vini okkar, Ísleifi Birgissyni, sem lést skyndilega fyrir örfáum árum. Við minnumst hans með mikilli hlýju og ást. Með því að semja og flytja þessa tónlist höldum við heiðri hans á lofti því tónlistin á upphaf sitt að rekja til hans.“

Hljómsveitin á sér langa sögu.Anna Maggý

Hjörleifur segir eitt af því sem gerir hljómsveitina spennandi sé sú staðreynd að hún einblíni ekki á eina tegund tónlistar. „Við spilum og framleiðum tónlist sem ferðast um margar tegundir. Til að mynda þjóðlagatónlist, þjóðlagarokk, bluegrass, grunge-rokk og rokk. 

Við gerð plötunnar komu fleiri listamenn sem lögðu okkur lið. Kjartan Baldursson spilaði á pedal steel og rafmagnsgítar, Tómas Jónsson á synthum, Gréta Salóme á fiðlu og Freysteinn Gíslason á kontrabassa. Upptökustjórn og hljóðblöndun var í höndum Bjarka Ómarssonar.“

Hér er hægt að hlusta á hljómsveitina á streymisveitunni Spotify. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.