Lífið

Vala Kristín og Hildur Vala verða Anna og Elsa í söng­­leiknum Frosti

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Vala og Hildur eru öllum hnútum kunnugar í íslensku söngleikjasenunni.
Vala og Hildur eru öllum hnútum kunnugar í íslensku söngleikjasenunni. Þjóðleikhúsið

Leikkonurnar Vala Kristín Eiríksdóttir og Hildur Vala Baldursdóttir munu fara með hlutverk systranna og prinsessanna Önnu og Elsu í íslenskri útgáfu á söngleiknum Frozen sem frumsýnd verður í Þjóðleikhúsinu í mars næstkomandi. 

Þetta var tilkynnt í sjónvarpsþættinum Vikunni með Gísla Marteini á RÚV rétt í þessu. 

Hildur mun fara með hlutverk ísprinsessunnar Elsu. Hildur hefur starfað í þjóðleikhúsinu frá útskrift úr Listaháskólanum og fór með hlutverk Ronju ræningjadóttur í samnefndu leikriti. Síðan þá hefur hún meðal annars leikið í Kardemommubænum, Nashyrningunum og Atómstöðinni. 

Þá mun Vala fara með hlutverk Önnu, litlu systur hennar. Hún hefur verið fastráðin við Borgarleikhúsið frá árinu 2015 þar sem hún hefur meðal annar stigið á svið í verkunum Oleanna, Allt sem er frábært og Matthildi, þar sem hún hlaut Grímuverðlaun sem leikkona í aukahlutverki. Að auki er Vala einn framleiðenda sjónvarpsþáttanna Venjulegt fólk.

Gísli leikstýrir á öllum Norðurlöndunum

Söngleikurinn Frost verður sýndur í Þjóðleikhúsinu en að auki í leikhúsum í Danmörku, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi, og á öllum stöðum undir leikstjórn Gísla Arnar Garðarssonar.

Uppfærslan á söngleiknum Frost er samstarfsverkefni milli Vesturports og fimm leikhúsa á Norðurlöndunum, þar á meðal Þjóðleikhússins. 

Gísli Örn Garðarsson leikari og leikstjóri kemur til með að leikstýra í öllum fimm leikhúsunum. Sýningin verður frumsýnd í Ósló nú í október, síðan hérlendis í mars, svo í Stokkhólmi, Helsinki og loks í Danmörku. 

Bak við íslensku uppfærsluna er öflugt listrænt teymi. Bragi Valdimar Skúlason mun sjá um að þýða söngleikinn á íslensku. Leikmyndahönnuðurinn Börkur Jónsson, einn helsti samstarfsmaður Gísla Arnar, mun hanna leikmyndina. Þá mun búningahönnuðurinn Christina Lovery hanna búningana.

„Þetta er bara ævintýri með geggjuðum lögum, húmor og dramatískri sögu. Þetta er því með öll kryddin sem þarf í góðan söngleik,“ sagði Gísli Örn um verkefnið í viðtali við fréttastofu í vor. Viðtalið í heild sinni má nálgast hér að neðan. 

Uppfært: Fyrst kom fram að Vala færi með hlutverk Elsu og Hildur með hlutverk Önnu. Svo reyndist það öfugt. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.