Lífið

Grét þegar hún út­skýrði inn­blásturinn fyrir förðunar­verkinu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Sigurveig var í vandræðum með tilfinningar sínar þegar hún útskýrði hvaðan hún sótti innblástur.
Sigurveig var í vandræðum með tilfinningar sínar þegar hún útskýrði hvaðan hún sótti innblástur.

Í þriðja þættinum af Útliti kepptu sex hæfileikaríkir förðunarfræðingar í tveimur spennandi og krefjandi áskorunum.

Um er að ræða raunveruleikaþætti á Stöð 2 á föstudagskvöldum. Hver þáttur hefur sitt þema sem reynir á tækni og sköpunargáfu keppenda.

Marín Manda er umsjónarmaður þáttanna en dómarar í hverri viku eru þau Ísak Freyr og Harpa Káradóttir.

Í síðasta þætti sagði Sigurveig Þórmundsdóttir frá því hvaðan hún sótti innblástur fyrir förðun sína í einni áskoruninni.

Orðið sem hún vann með var óstöðvandi og tengir hún það við allar þær konur sem hafa verið í kringum hana á lífsleiðinni og þá sérstaklega amma hennar en frásögn Sigurveigar var magnþrunginn og brotnaði hún sjálf niður þegar hún talaði um ömmu sína sem er í dag fallin frá.

Hér að neðan má sjá brot úr síðasta þætti en hægt er að sjá þáttinn í heild sinni á Stöð 2+.

Klippa: Grét þegar hún út­skýrði inn­blásturinn fyrir förðunar­verkinu





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.