Gríðarlegt magn af rottuskít og um tuttugu tonnum af mat fargað Helena Rós Sturludóttir skrifar 9. október 2023 15:18 Maturinn fannst í kjallara í Sóltúni 20 sem hreingerningarfyrirtækið Vy-þrif var með á leigu. Vísir/Vilhelm Farga þurfti rúmum tuttugu tonnum af matvælum sem geymd voru í um 360 fermetra kjallara í Sóltúni 20 eftir að matvælaeftirlit heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur komst á snoðir um málið. Mikið magn rottuskíts var að finna í rýminu og þurfti fjölmargar ferðir á sendiferðabílum til að ferja matvælin í Sorpu. Eigandinn svarar ekki fjölmiðlum vegna málsins. Greint hefur verið frá því að þriffyrirtækið Vy-þrif sem er í eigu Davíðs Viðarssonar, stórtæks veitingamanns, hafi verið með kjallarann á leigu þar sem matvælin voru hýst við óheilnæmar aðstæður samkvæmt upplýsingum frá matvælaeftirlitinu. Maturinn var talinn hættulegur til neyslu og lauk förgun á honum á mánudaginn fyrir viku. Samkvæmt heimildum fréttastofu var magnið af matvælunum rúm tuttugu tonn. Sautján frystikistur voru í kjallaranum þar sem allskyns matvörur voru geymdar; kjöt, þurrvörur, frystivörur, sósur og fleira. Matnum var fargað með lífrænum úrgangi á móttökustað SORPU í Álfsnesi. Þangað fóru sendibílar margar ferðir með fulla bíla af mat. Ekki hafa fengist upplýsingar frá heilbrigðiseftirlitinu hvort til hafi staðið að selja matvælin til veitingastaða eða annarra aðila. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu er málið til rannsóknar hjá eftirlitinu. Samkvæmt heimildum fréttastofu var mikill rottugangur í kjallaranum. Þegar heilbrigðiseftirlitið mætti í úttekt sína var afar mikið magn af rottuskít á gólfi geymslurýmisins. Fasteignafélagið Sigtún ehf er eigandi rýmisins en leigði það út til annars félags. Samkvæmt heimildum fréttastofu vildi félagið losna úr rýminu en var fast með leigusamning. Úr varð að félagið framleigði rýmið til þriffyrirtækisins Vy-þrif. Vy-þrif er í fyrirtækjaskrá skráð á rúmlega fimmtugan karlmann að nafni Davíð Viðarsson. Þangað til fyrir skemmstu hét hann Quang Le og heitir raunar enn á Facebook. Hann á einnig veitingahúsakeðjuna Pho Víetnam. Þá er hann skráður fyrir félaginu NQ fasteignir ehf sem festi í fyrra kaup á Herkastalanum við Kirkjustræti í miðbæ Reykjavíkur fyrir á hálfan milljarð króna. Herkastalinn hýsti Hjálpræðisherinn áratugum saman. Í dag er gistiheimili skráð í Herkastalanum sem hefur rekstrarleyfi fyrir 125 gesti. Eldjárn Árnason, lögmaður Vy-þrifa, sagði í samtali við fréttastofu um helgina að þrátt fyrir að Davíð væri eigandi veitingastaðakeðjunnar væri hann ekki rekstraraðili. Samkvæmt heimildum fréttastofu eru þær upplýsingar rangar. Davíð sér um daglegan rekstur þeirra. Samkvæmt fyrirtækjaskrá er Davíð einnig skráður fyrir 40 prósenta eignarhlut í WOKON Mathöll ehf. Kristján Ólafur Sigríðarson, eigandi Wok On veitingastaðakeðjunnar, segir staðinn aldrei hafa keypt matvæli sem geymd voru í Sóltúni 20. Hann hafi verslað við Davíð fyrir einhverjum árum en þá í gegnum matvörumarkaðinn Vietnam Market sem Davíð er skráður eigandi að. Kristján segist jafnframt enga vitneskju hafa haft um lagerinn í kjallara Sóltúns. Ekki hefur náðst í Davíð þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir, hvorki símleiðis né í gegnum skilaboð. Þegar fréttastofa reyndi að ná tali af forsvarsfólki Vy-þrifa fyrir helgi var síminn áframsendur á karlmann sem skildi ekkert í því að síminn hefði verið framsendur á hann. Hann tengdist Vy-þrifum ekki neitt. Hann væri þó vinur eigandans. Mikið magn af asískum mat var í kjallaranum auk gríðarlegs magns af rottuskít samkvæmt öruggum heimildum fréttastofu.Vísir/Vilhelm Fréttastofa óskaði eftir frekari svörum frá heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur vegna málsins fyrir helgi og viðtali við fulltrúa eftirlitsins. Tómas G. Gíslason framkvæmdastjóri eftirlitsins óskaði eftir því að fá skriflegar spurningar vegna málsins. Þeim hefur ekki enn verið svarað þrátt fyrir ítrekun. Samkvæmt upplýsingum frá eftirlitinu er málið í rannsókn og þegar það hefur verið tekið saman verður eftirlitsskýrsla gerð opinber. Veistu meira um málið? Vísir tekur við öllum ábendingum á netfangið ritstjorn@visir.is eða í tölvupósti á einstaka blaðamenn. Fullum trúnaði er heitið. Veitingastaðir Heilbrigðiseftirlit Reykjavík Ólöglegur matvælalager í Sóltúni Mál Davíðs Viðarssonar Tengdar fréttir Segir eiganda ólöglega matvælalagersins ekki rekstraraðila veitingastaðanna Eldjárn Árnason, lögmaður eiganda hreingerningarfyrirtækisins VY þrif, segir hann ekki reka veitingahúsakeðjuna Pho Vietnam, sem hann er þó skráður eigandi að.Fyrirtækið Vy-þrif hafði til leigu geymslurými í Sóltúni þar sem heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur lagði hald á og lét farga nokkrum tonnum af óheilnæmum matvælum í síðustu viku. 7. október 2023 13:35 Matvælin í geymslu þriffyrirtækis nátengdu veitingahúsarekstri Þriffyrirtæki í Reykjavík sem er í eigu stórtæks veitingamanns leigði geymslurými í höfuðborginni þar sem heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur lagði hald á og lét farga fleiri tonnum af matvælum í síðustu viku. Óljóst er hvort til hafi staðið að selja matvælin til veitingastaða eða annarra aðila. 6. október 2023 22:25 Eigandinn í Sóltúni segir málið sér óviðkomandi Eigandi húsnæðisins þar sem lagt var hald á mikið magn matvæla við óheilnæmar aðstæður í síðustu viku, segir málið sér alls óviðkomandi. Hann hafi leigt húsnæðið og sá sem leigði af honum áframleigði það. 6. október 2023 10:46 Ekki ljóst hvort veitingastaðir eða aðrir hafi keypt heilsuspillandi matvörur Matvælaeftirlit heilbrigðiseftirlits Reykjavíkurborgar hefur látið farga nokkrum tonnum af matvælum sem lagt var hald á í síðustu viku. Matvælin voru geymt á ólöglegum stað án tilskylinna leyfa og segir deildarstjóri matvælaeftirlitsins málið fordæmalaust. 5. október 2023 12:53 Mest lesið Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Innlent Safna fyrir fjölskyldu Steinunnar sem lést við barnsburð Innlent Inga í veikindaleyfi Innlent Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Innlent Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Nálgast stríðið vendipunkt? Erlent Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Innlent Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Innlent Ver billjónum í „draumóra“ um lengra líf Erlent Hættulegt að lána lyf Innlent Fleiri fréttir Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Nei eða já? Af eða á? Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn hérlendis Samkomulagi náð og verkfalli aflýst Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Hættulegt að lána lyf Kjaradeilan vekur upp spurningar um framtíð Icelandair Vör ýtt úr vör Barn missti meðvitund eftir árekstur á skólalóð Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Ari Edwald enn undir feldi Loka hringveginum til norðurs á sunnudagskvöld Eden Mining lagði sóknarbörnin Kæru foreldra Sólons gegn Icelandair vísað frá dómi Skýrslan um krónuna sýni að valkostirnir séu tveir Styttan af Séra Friðriki fer upp, bara ekki strax Mynda meirihluta án Framsóknar í Skagafirði Truflanir á island.is Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Þrír mánuðir til stefnu Stefán Jökulsson er látinn Viðræður þokast lítið áfram þrátt fyrir ítrekaða fundi Inga í veikindaleyfi Slagurinn um ESB og sumarhretið fyrir austan Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Bein útsending: Ópíóíðar og verkjalyf á Íslandi Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Sjá meira
Greint hefur verið frá því að þriffyrirtækið Vy-þrif sem er í eigu Davíðs Viðarssonar, stórtæks veitingamanns, hafi verið með kjallarann á leigu þar sem matvælin voru hýst við óheilnæmar aðstæður samkvæmt upplýsingum frá matvælaeftirlitinu. Maturinn var talinn hættulegur til neyslu og lauk förgun á honum á mánudaginn fyrir viku. Samkvæmt heimildum fréttastofu var magnið af matvælunum rúm tuttugu tonn. Sautján frystikistur voru í kjallaranum þar sem allskyns matvörur voru geymdar; kjöt, þurrvörur, frystivörur, sósur og fleira. Matnum var fargað með lífrænum úrgangi á móttökustað SORPU í Álfsnesi. Þangað fóru sendibílar margar ferðir með fulla bíla af mat. Ekki hafa fengist upplýsingar frá heilbrigðiseftirlitinu hvort til hafi staðið að selja matvælin til veitingastaða eða annarra aðila. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu er málið til rannsóknar hjá eftirlitinu. Samkvæmt heimildum fréttastofu var mikill rottugangur í kjallaranum. Þegar heilbrigðiseftirlitið mætti í úttekt sína var afar mikið magn af rottuskít á gólfi geymslurýmisins. Fasteignafélagið Sigtún ehf er eigandi rýmisins en leigði það út til annars félags. Samkvæmt heimildum fréttastofu vildi félagið losna úr rýminu en var fast með leigusamning. Úr varð að félagið framleigði rýmið til þriffyrirtækisins Vy-þrif. Vy-þrif er í fyrirtækjaskrá skráð á rúmlega fimmtugan karlmann að nafni Davíð Viðarsson. Þangað til fyrir skemmstu hét hann Quang Le og heitir raunar enn á Facebook. Hann á einnig veitingahúsakeðjuna Pho Víetnam. Þá er hann skráður fyrir félaginu NQ fasteignir ehf sem festi í fyrra kaup á Herkastalanum við Kirkjustræti í miðbæ Reykjavíkur fyrir á hálfan milljarð króna. Herkastalinn hýsti Hjálpræðisherinn áratugum saman. Í dag er gistiheimili skráð í Herkastalanum sem hefur rekstrarleyfi fyrir 125 gesti. Eldjárn Árnason, lögmaður Vy-þrifa, sagði í samtali við fréttastofu um helgina að þrátt fyrir að Davíð væri eigandi veitingastaðakeðjunnar væri hann ekki rekstraraðili. Samkvæmt heimildum fréttastofu eru þær upplýsingar rangar. Davíð sér um daglegan rekstur þeirra. Samkvæmt fyrirtækjaskrá er Davíð einnig skráður fyrir 40 prósenta eignarhlut í WOKON Mathöll ehf. Kristján Ólafur Sigríðarson, eigandi Wok On veitingastaðakeðjunnar, segir staðinn aldrei hafa keypt matvæli sem geymd voru í Sóltúni 20. Hann hafi verslað við Davíð fyrir einhverjum árum en þá í gegnum matvörumarkaðinn Vietnam Market sem Davíð er skráður eigandi að. Kristján segist jafnframt enga vitneskju hafa haft um lagerinn í kjallara Sóltúns. Ekki hefur náðst í Davíð þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir, hvorki símleiðis né í gegnum skilaboð. Þegar fréttastofa reyndi að ná tali af forsvarsfólki Vy-þrifa fyrir helgi var síminn áframsendur á karlmann sem skildi ekkert í því að síminn hefði verið framsendur á hann. Hann tengdist Vy-þrifum ekki neitt. Hann væri þó vinur eigandans. Mikið magn af asískum mat var í kjallaranum auk gríðarlegs magns af rottuskít samkvæmt öruggum heimildum fréttastofu.Vísir/Vilhelm Fréttastofa óskaði eftir frekari svörum frá heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur vegna málsins fyrir helgi og viðtali við fulltrúa eftirlitsins. Tómas G. Gíslason framkvæmdastjóri eftirlitsins óskaði eftir því að fá skriflegar spurningar vegna málsins. Þeim hefur ekki enn verið svarað þrátt fyrir ítrekun. Samkvæmt upplýsingum frá eftirlitinu er málið í rannsókn og þegar það hefur verið tekið saman verður eftirlitsskýrsla gerð opinber. Veistu meira um málið? Vísir tekur við öllum ábendingum á netfangið ritstjorn@visir.is eða í tölvupósti á einstaka blaðamenn. Fullum trúnaði er heitið.
Veistu meira um málið? Vísir tekur við öllum ábendingum á netfangið ritstjorn@visir.is eða í tölvupósti á einstaka blaðamenn. Fullum trúnaði er heitið.
Veitingastaðir Heilbrigðiseftirlit Reykjavík Ólöglegur matvælalager í Sóltúni Mál Davíðs Viðarssonar Tengdar fréttir Segir eiganda ólöglega matvælalagersins ekki rekstraraðila veitingastaðanna Eldjárn Árnason, lögmaður eiganda hreingerningarfyrirtækisins VY þrif, segir hann ekki reka veitingahúsakeðjuna Pho Vietnam, sem hann er þó skráður eigandi að.Fyrirtækið Vy-þrif hafði til leigu geymslurými í Sóltúni þar sem heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur lagði hald á og lét farga nokkrum tonnum af óheilnæmum matvælum í síðustu viku. 7. október 2023 13:35 Matvælin í geymslu þriffyrirtækis nátengdu veitingahúsarekstri Þriffyrirtæki í Reykjavík sem er í eigu stórtæks veitingamanns leigði geymslurými í höfuðborginni þar sem heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur lagði hald á og lét farga fleiri tonnum af matvælum í síðustu viku. Óljóst er hvort til hafi staðið að selja matvælin til veitingastaða eða annarra aðila. 6. október 2023 22:25 Eigandinn í Sóltúni segir málið sér óviðkomandi Eigandi húsnæðisins þar sem lagt var hald á mikið magn matvæla við óheilnæmar aðstæður í síðustu viku, segir málið sér alls óviðkomandi. Hann hafi leigt húsnæðið og sá sem leigði af honum áframleigði það. 6. október 2023 10:46 Ekki ljóst hvort veitingastaðir eða aðrir hafi keypt heilsuspillandi matvörur Matvælaeftirlit heilbrigðiseftirlits Reykjavíkurborgar hefur látið farga nokkrum tonnum af matvælum sem lagt var hald á í síðustu viku. Matvælin voru geymt á ólöglegum stað án tilskylinna leyfa og segir deildarstjóri matvælaeftirlitsins málið fordæmalaust. 5. október 2023 12:53 Mest lesið Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Innlent Safna fyrir fjölskyldu Steinunnar sem lést við barnsburð Innlent Inga í veikindaleyfi Innlent Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Innlent Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Nálgast stríðið vendipunkt? Erlent Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Innlent Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Innlent Ver billjónum í „draumóra“ um lengra líf Erlent Hættulegt að lána lyf Innlent Fleiri fréttir Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Nei eða já? Af eða á? Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn hérlendis Samkomulagi náð og verkfalli aflýst Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Hættulegt að lána lyf Kjaradeilan vekur upp spurningar um framtíð Icelandair Vör ýtt úr vör Barn missti meðvitund eftir árekstur á skólalóð Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Ari Edwald enn undir feldi Loka hringveginum til norðurs á sunnudagskvöld Eden Mining lagði sóknarbörnin Kæru foreldra Sólons gegn Icelandair vísað frá dómi Skýrslan um krónuna sýni að valkostirnir séu tveir Styttan af Séra Friðriki fer upp, bara ekki strax Mynda meirihluta án Framsóknar í Skagafirði Truflanir á island.is Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Þrír mánuðir til stefnu Stefán Jökulsson er látinn Viðræður þokast lítið áfram þrátt fyrir ítrekaða fundi Inga í veikindaleyfi Slagurinn um ESB og sumarhretið fyrir austan Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Bein útsending: Ópíóíðar og verkjalyf á Íslandi Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Sjá meira
Segir eiganda ólöglega matvælalagersins ekki rekstraraðila veitingastaðanna Eldjárn Árnason, lögmaður eiganda hreingerningarfyrirtækisins VY þrif, segir hann ekki reka veitingahúsakeðjuna Pho Vietnam, sem hann er þó skráður eigandi að.Fyrirtækið Vy-þrif hafði til leigu geymslurými í Sóltúni þar sem heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur lagði hald á og lét farga nokkrum tonnum af óheilnæmum matvælum í síðustu viku. 7. október 2023 13:35
Matvælin í geymslu þriffyrirtækis nátengdu veitingahúsarekstri Þriffyrirtæki í Reykjavík sem er í eigu stórtæks veitingamanns leigði geymslurými í höfuðborginni þar sem heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur lagði hald á og lét farga fleiri tonnum af matvælum í síðustu viku. Óljóst er hvort til hafi staðið að selja matvælin til veitingastaða eða annarra aðila. 6. október 2023 22:25
Eigandinn í Sóltúni segir málið sér óviðkomandi Eigandi húsnæðisins þar sem lagt var hald á mikið magn matvæla við óheilnæmar aðstæður í síðustu viku, segir málið sér alls óviðkomandi. Hann hafi leigt húsnæðið og sá sem leigði af honum áframleigði það. 6. október 2023 10:46
Ekki ljóst hvort veitingastaðir eða aðrir hafi keypt heilsuspillandi matvörur Matvælaeftirlit heilbrigðiseftirlits Reykjavíkurborgar hefur látið farga nokkrum tonnum af matvælum sem lagt var hald á í síðustu viku. Matvælin voru geymt á ólöglegum stað án tilskylinna leyfa og segir deildarstjóri matvælaeftirlitsins málið fordæmalaust. 5. október 2023 12:53