Lífið

Litla hryllingsbúðin slær í gegn í Hveragerði

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Guggurnar, sem fara á kostum í sýningunni, frá vinstri, Guðrún Ágústa Gunnarsdóttir, Svala Norðdahl og Hanna Tara Björnsdóttir.
Guggurnar, sem fara á kostum í sýningunni, frá vinstri, Guðrún Ágústa Gunnarsdóttir, Svala Norðdahl og Hanna Tara Björnsdóttir. Magnús Hlynur Hreiðarsson

Það gengur mikið á í Hveragerði þessa dagana því þar er leikfélag bæjarins að sýna Litlu Hryllingsbúðina við mikinn fögnuð leikhúsgesta. Bræður og systur spila stór hlutverk í sýningunni svo ekki sé minnst á Guggurnar eins og þær kalla sig, sem fara á kostum.

Leikfélag Hveragerðis er eitt af öflugustu áhugaleikfélögum landsins og nú er það Litla Hryllingsbúðin í leikstjórn Jóels Sæmundssonar, sem er á sviðinu. Níu leikarar taka þátt í sýningunni, þar af bræður og tvíburasystur og ekki má gleyma öllu fólkinu á bak við tjöldin. Söngur er áberandi í sýningunni.

Hvernig er að vera svona bræður á leiksviðinu, er það ekki skemmtilegt?

„Jú, þetta er búið að vera rosalega skemmtilegt að fá að vinna með stóra bróður mínum,” segir Ingberg Örn. „Jú, hann sagði einmitt við mig einhvern tímann að hann myndi ekki leika með mér á sviði nema að hann væri með stærra hlutverk, þannig að hann er aðalhlutverkið, þannig að það gekk upp hjá honum”, segir Sindri Mjölnir en bræðurnir eru Magnússynir.

„Þetta er virkilega flott leikfélag og ég mæli endilega með að koma hingað og kíkja á okkur. Þau eru rosalega virk hérna í Hveragerði og setja alltaf upp brjálæðislega flottar sýningar, ljósasjóvið og allt saman miðað við hvað þetta er lítið húsnæði og svoleiðis. Þetta er bara alveg geðveikt,” bætir Sindri Mjölnir við.

Bræðurnir Ingberg Örn (t.v.) og Sindri Mjölnir Magnússynir, sem standa sig frábærlega í sýningunni. Magnús Hlynur Hreiðarsson

Og Guggurnar eins og þær kalla sig eru nánast allan tímann á sviðinu og fara vel með sín hlutverk.

„Það er ákveðin pressa að setja þetta upp því fólk er með ákveðnar fyrir fram hugmyndir. Já, þetta hefur verið sett upp á stórum sviðum með geggjuðum leikurum þannig að þetta eru stór fótspor að feta í,” segja þær Guðrún Ágústa Gunnarsdóttir, Svala Norðdahl og Hanna Tara Björnsdóttir.

En af hverju ætti fólk að koma á sýninguna?

„Til að sjá okkur, nei, bara til að sjá alla vinnuna, sem hefur verið sett í þetta. Skemmtilegur söngur, dans og geggjaða plöntu og leikmynd. Þetta er bara allt rosalega skemmtilegt og flott,” segir Guggurnar, sem eru himinlifandi með sýninguna.

Hér er hægt að panta miða á sýninguna






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.