Dauðaleit að uppreisnarmönnum sem myrtu nýgift hjón Viktor Örn Ásgeirsson skrifar 19. október 2023 21:24 Þjóðgarðurinn er vinsæll ferðamannastaður. Með hjónunum í för var úganskur leiðsögumaður. Getty/Giovanni Mereghetti Forseti Úganda segir að dauðaleit standi yfir að mönnum sem taldir eru hafa myrt nýgift hjón, ferðamenn í brúðkaupsferð. Hann segir að öryggissveitir séu komnar á sporið. Bresk yfirvöld ráðleggja ríkisborgurum sínum að ferðast til tiltekinna svæða í Úganda.
Hjónin nýgiftu voru í brúðkaupsferð á vinsælum ferðamannastað í Úganda þegar þau voru myrt. Leiðsögumaður hjónanna var einnig myrtur og kveikt var í bifreiði þeirra. Hjónin voru frá Bretlandi og Suður-Afríku. Forseti landsins fordæmir morðin en segir ferðamannastaðinn, þjóðgarð sem nefndur er eftir Elísabetu heitinni Bretadrottningu, öruggan. „Þessir hryðjuverkamenn munu fá að gjalda líku líkt. En dauðarefsingin sem þeir eiga yfir höfði sér mun ekki lækna öll sár. Hjónin eru farin og koma ekki aftur. Hjón sem ákváðu að velja Úganda, af öllum 193 löndum í heiminum, sem áfangastað fyrir brúðkaupsferðina. Embættismenn okkar í Bretlandi munu hafa samband við fjölskyldur látnu og veita þeim allan stuðning sem þau þurfa,“ segir Yoweri Museveni forseti Úganda. Talið er að uppreisnarmennirnir, sem taldir eru tilheyra hryðjuverkahópnum ADF, hafi verið á flótta frá úganska hernum þegar þeir komu auga á hjónin og ákveðið að myrða þau. Hryðjuverkasamtökin hafa tengsl við ISIS og eru á lista yfir hryðjuverkasamtök í Bandaríkjunum og víðar. Yfirvöld í Bretlandi hafa ráðið breskum ríkisborgurum frá því að ferðast til þjóðgarðarins, að því er fram kemur hjá CNN.
Úganda Bretland Mest lesið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Innlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Innlent Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Innlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Innlent Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Innlent Fleiri fréttir Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Sjá meira