Sextíu og þrír látnir eftir umferðarslys í Úganda Sextíu og þrír eru látnir eftir að tvær rútur skullu saman þegar þær reyndu að taka fram úr flutningabifreið og fólksbíl, á Kampala-Gulu hraðbrautinni í Úganda. Erlent 22.10.2025 06:58
Mál úgandsks stríðsherra gæti haft þýðingu fyrir Pútín og Netanjahú Saksóknarar við Alþjóðaglæpadómstólinn ætla að leggja fram gögn til að styðja ákæru á hendur úgöndskum stríðsherra vegna stríðsglæpa og glæpi gegn mannkyninu að honum fjarstöddum. Málið er sagt geta haft fordæmisgildi þar sem grunaður maður er ekki í haldi, til dæmis fyrir Vladímír Pútín og Benjamín Netanjahú. Erlent 8.9.2025 11:37
Vilja nú senda El Salvador fangann til Úganda Kilmar Abrego Garcia, sem var ranglega sendur frá Bandaríkjunum í alræmt fangelsi í El Salvador fyrr á árinu, hefur verið handsamaður á nýjan leik og stendur nú frammi fyrir því að vera sendur til Úganda. Erlent 25.8.2025 14:22
Kveikti í afrekshlaupara og fyrrverandi kærustu Maraþonhlauparinn Rebecca Cheptegei er í lífshættu á spítala í Kenía eftir að fyrrverandi kærasti hennar reyndi að myrða hana. Sport 3. september 2024 15:31
Bætt skólaeldhús fyrir íslensk fjárframlög Ný og betri skólaeldhús sem greidd eru af íslensku þróunarfé hafa verið sett upp í tuttugu grunnskólum á Karamoja-svæðinu í Úganda undanfarna mánuði. Til stendur einnig að endurbæta rúmlega fimmtíu skólaeldhús til viðbótar á svæðinu áður en árið er liðið fyrir fjárframlög frá Íslandi. Innlent 12. júní 2024 13:19
Austur-Kongó og Rúanda á „barmi styrjaldar“ Hundruð þúsunda hafa þurft að flýja undan sífellt harðnandi átökum milli hers Austur-Kongó og M23 uppreisnarmanna í austurhluta Kongó. Uppreisnarmennirnir hafa barist gegn hernum í áratugi, með stuðningi yfirvalda í Rúanda, en líkur á almennu stríði milli Kongó og Rúanda hafa aukist verulega. Erlent 21. febrúar 2024 13:33
Varlega skal farið í að „skipta um þjóð í þjóðinni“: Seinni saga Ég starfaði í Afríku á árunum 1992-1998. Þessi saga fjallar um innflutning á fólki til nýs lands en af öðrum toga en fyrri grein en fjallar hún um að skipta um þjóð í þjóðinni. Skoðun 18. janúar 2024 07:01
Gaf allt sem hún var með á sér og fór berfætt heim Hrefna Bachmann, forstjóri og frumkvöðull, ræddi við Einar Bárðarson um verkefni sín í Úganda undanfarinn áratug, stórfellda innviðauppbyggingu í bænum Banda og fólkið sem hún hefur aðstoðað þar. Innlent 1. janúar 2024 18:17
Dauðaleit að uppreisnarmönnum sem myrtu nýgift hjón Forseti Úganda segir að dauðaleit standi yfir að mönnum sem taldir eru hafa myrt nýgift hjón, ferðamenn í brúðkaupsferð. Hann segir að öryggissveitir séu komnar á sporið. Bresk yfirvöld ráðleggja ríkisborgurum sínum að ferðast til tiltekinna svæða í Úganda. Erlent 19. október 2023 21:24
Mæðrum haldið föngnum ef þær geta ekki borgað sjúkrahúsreikninginn Mannréttindasamtök og aðgerðasinnar í Úganda vonast til þess að dómsmál sem tekið verður fyrir nú í ágúst verði til þess að binda enda á það verklag sjúkrahúsa að halda einstaklingum föngum sem ekki hafa gert upp reikninginn vegna dvalar sinnar. Erlent 22. ágúst 2023 08:16
Saka yfirmann hjá Intel um herferð gegn hinsegin fólki í Afríku Yfir tugur mannréttindasamtaka í Afríku hefur efnt til undirskriftasöfnunar og kallað eftir því að bandaríska fyrirtækið Intel Corporation láti háttsettan yfirmann fjúka, vegna meintrar framgöngu hans gegn réttindum hinsegin fólks í álfunni. Erlent 7. júlí 2023 07:27
Myrtu hátt í fjörutíu nemendur í skóla í Úganda Uppreisnarmenn með tengsl við hryðjuverkasamtökin Ríki íslams eru sakaðir um að myrða 41 mann, þar af 38 nemendur, í heimavistarskóla í Úganda nærri landamærunum að Austur-Kongó á föstudagskvöld. Sum fórnarlambanna voru brennd til bana. Erlent 18. júní 2023 08:51
Dauðarefsing við samkynhneigð Á dögunum undirritaði forseti Úganda löggjöf sem gengur lengst allra landa í andstöðu við réttindi hinsegin fólks. Þannig liggur nú m.a. dauðarefsing við samkynhneigð í ríkinu, en lögin voru samþykkt á þingi Úganda í mars með yfirgnæfandi meirihluta. Löggjöfin hefur þegar vakið upp hörð viðbrögð og fordæmingu, bæði innan Úganda og frá lýðræðisríkjunum. Skoðun 7. júní 2023 07:31
Hræðileg afturför fyrir réttindi hinsegin fólks Framkvæmdastjóri Samtakanna '78 segir nýsamþykkt lög um samkynhneigða í Úganda þau hættulegustu í heimi í dag fyrir hinsegin fólk og geri það nánast réttdræpt. Ísland á í þróunarsamstarfi við Úganda, en utanríkisráðherra segir samskipti við ríki þar sem grundvallarmannréttindi eru ekki virt, alltaf vera flókin. Erlent 29. maí 2023 23:33
Dauðarefsingar og tuttugu ára dómar við samkynhneigð í Úganda Yoweri Museveni, forseti Úganda, hefur skrifað undir lög sem fela í sér eina mestu skerðingu á réttindum hinsegin fólks í heiminum. Með lögunum geta þeir sem „auglýsa“ samkynhneigð átt yfir höfði sér tuttugu ára fangelsi og þeir sem stunda samkynja kynlíf sýktir af HIV geta hlotið dauðarefsingu. Erlent 29. maí 2023 10:20
Óttast dreifingu ebólu í höfuðborg Úganda Sex börn úr sömu fjölskyldunni í Kampala, höfuðborg Úganda, hafa greinst með ebólu. Yfirvöld óttast að útbreiðslan verði hraðari nú þegar hún hefur náð til þéttbýlli svæða landsins. Erlent 26. október 2022 20:45
Stökkið: Flutti til Úganda í starfsnám hjá sendiráðinu Vaka Lind Birkisdóttir er starfsnemi í íslenska sendiráðinu í Kampala, Úganda. Áður starfaði hún sem framkvæmdastjóri hjá Stúdentaráði Háskóla Íslands. Hún lærði félagsfræði og hagfræði á Íslandi áður en hún flutti til Dublin þar sem hún útskrifaðist með MSc í alþjóðlegum stjórnmálum frá Trinity College. Lífið 12. september 2022 08:05
Sextán látin vegna aurskriðu í Úganda Miklar rigningar á þriðjudag í Úganda ollu aurskriðu í Kasese héraði snemma á miðvikudag sem varð sextán manns að bana. Sex glíma við meiðsli vegna skriðunnar og eru sögð fá hjálp á sjúkrahúsi í grenndinni. Erlent 8. september 2022 18:26
Hátíðarstemning þegar ný kvenna- og fæðingardeild var opnuð Ný kvenna- og fæðingardeild var formlega opnuð á skólalóð ABC barnahjálpar í bænum Rockoko í norðurhluta Úganda fyrr í mánuðinum. Framkvæmdin var fjármögnuð með stuðningi íslenska utanríkisráðuneytisins, nytjamarkaðar ABC og sömuleiðis annarra styrktaraðila. Lífið 25. ágúst 2022 14:01
Bæta námsmöguleika barna með fatlanir til muna Kristrún Friðsemd Sveinsdóttir fór um miðjan júlí til Úganda ásamt Valdísi Önnu Þrastardóttur fyrir hönd samtakanna CLF á Íslandi. Þar gerðu þær lokaúttekt á verkefni sem var styrkt af utanríkisráðuneytinu og hófu í leiðinni annað verkefni, sem einnig er styrkt af ráðuneytinu. Lífið 16. ágúst 2022 16:15
Hækkun íslenskra framlaga til UN Women, UNICEF og UNFPA Íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að hækka kjarnaframlög til þriggja Sameinuðu þjóða stofnana, UN Women, UNICEF og UNFPA. Á fundum utanríkisráðherra með framkvæmdastjórum stofnananna í gær var greint frá því að kjarnaframlög til UN Women hækki um 12 prósent, um 15 prósent til UNICEF og um rúmlega 70 prósent til UNFPA. Heimsmarkmiðin 27. apríl 2022 13:25
Ísland bætir hreinlætisaðstöðu í skólum í Úganda Ísland hefur ákveðið að styrkja UNICEF í Úganda um 40 milljónir króna í þeim tilgangi að sporna gegn útbreiðslu kórónuveirunnar með því að bæta hreinlætisaðstöðu í 600 ríkisreknum grunn- og framhaldsskólum í landinu. Skólar í Úganda voru opnaðir í janúar eftir tveggja ára lokun. Heimsmarkmiðin 18. mars 2022 14:35
Úganda: Unnið að úrbótum í vatnsmálum í nýju samstarfshéraði Að undanförnu hefur verið unnið að því að bæta aðgengi íbúa Namahyingo héraðs í Úganda að neysluvatni. Í þessu nýja samstarfshéraði Íslendinga eru úrbætur á því sviði ofarlega á blaði hjá héraðsstjórninni. Vatnsmál eru í miklum ólestri í héraðinu og algengt að fólk sæki mengað vatn í polla með tilheyrandi heilsufarsvandamálum. Heimsmarkmiðin 31. janúar 2022 11:34
Íslenskur stuðningur við opnun skóla í Úganda Utanríkisráðuneytið hefur ákveðið að verja fjörutíu milljónum króna til að styðja við menntun barna í Úganda. Hvergi í heiminum hafa skólar lengur verið lokaðir en bæði börn og unglingar hafa ekki setið á skólabekk um tveggja ára skeið, frá því heimsfaraldur kórónuveirunnar hófst í mars 2020. Kennsla hófst víða á ný um miðjan þennan mánuð. Heimsmarkmiðin 27. janúar 2022 14:01