Seldi í Hampiðjunni á níu prósenta „afslætti“ skömmu eftir að sölubann rann út
![Hampiðjan er með stærri fyrirtækjum í Kauphöllinni með markaðsvirði upp á meira en 80 milljarða en norska fjárfestingafélagið átti fyrir söluna um sjö prósenta hlut.](https://www.visir.is/i/614148B1B9C594B42D21BF1AB4ED54483E705EAE402C9A4B4D0C3DCBD3BABB8E_713x0.jpg)
Aðeins rétt ríflega tveimur mánuðum eftir að sölubann á liðlega sjö prósenta hlut FSN Capital í Hampiðjunni rann út, sem það fékk sem greiðslu fyrir sölu á Mørenot fyrr á árinu, hefur norski fjárfestingasjóðurinn selt um tvo þriðju af stöðu sinni til hóps íslenskra fjárfesta fyrir vel á fjórða milljarð. Væntingar um að sjóðurinn sé enn með talsvert framboð af bréfum til sölu gæti haldi niðri gengi bréfa Hampiðjunnar.
Tengdar fréttir
![](https://www.visir.is/i/FA72ED5BADA32863716A0963F5A9320BB08B35897D9152F8392DE670BE04508C_308x200.jpg)
Fimm sjóðir keyptu nær helming seldra bréfa í útboði Hampiðjunnar
Íslenskir lífeyrissjóðir voru fyrirferðamestir í hlutafjárútboði Hampiðjunnar sem lauk í byrjun þessa mánaðar og keyptu stóran hluta þeirra bréfa sem var úthlutað til stærri fjárfesta. Þar munaði mestu um LSR sem er kominn í hóp allra stærstu hluthafa veiðarfæraframleiðandans eftir kaup sjóðsins.