Ævintýri Freyju og Frikka halda áfram í ævintýralandinu Ástralíu Storytel 15. nóvember 2023 09:44 Fjórða bókin í bókaflokknum Ævintýri Freyju og Frikka eftir Felix Bergsson kom út nýlega en hún ber nafnið Allt á hvolfi í Ástralíu. Þuríður Blær Jóhannsdóttir og Felix Bergsson lesa bókina saman. Nýlega kom út fjórða bókin í bókaflokknum Ævintýri Freyju og Frikka en hún ber nafnið Allt á hvolfi í Ástralíu.
Þetta er fjórða sagan í þessari ástsælu bókaseríu eftir Felix Bergsson, þar sem krakkar fá að slást í för með hugrökkum og frökkum systkinum um framandi slóðir. Eins og í fyrri bókum leggja fræknu ferðalangarnir Freyja og Frikki upp í ævintýralega heimsreisu. Í þetta skiptið er förinni heitið hinum megin á hnöttinn en systkinin hyggjast verja jólunum með mömmu sinni í algjörri steik og skínandi sólskini í Ástralíu – landinu þar sem jólasveinarnir eru brimbrettagæjar. En fljótlega kemur babb í bátinn eins við má búast þegar Freyja og Frikki ferðast um framandi slóðir. Felix segir alltaf jafn gaman að skrifa bækur um Freyju og Frikka og sjá þau eldast og þroskast milli ára. „Það er dásamleg tilfinning að hafa fengið að fylgja þeim í fjórum ævintýrum, allt frá því að þau fengu óvænta jólagjöf i fyrstu bókinni sem leiddi þau alla leið til Ekvador og Galapagoseyja. Ég hef notið þess í botn að skapa heiminn í kringum þau og leiða þau í ævintýri sem á löngum köflum virðast ætla að enda mjög illa. Þau eru að eldast og þroskast og ég vona að lesendur þroskist með þeim og læri af ævintýrum þeirra.“ Í nýju bókinni virðist Freyja alltaf fara öfugu megin fram úr. Henni finnst skrýtin tilhugsun að halda jólin í ókunnugu landi þar sem öllu er snúið á haus, stórhættulegar loðnar kóngulær gætu skriðið ofan í skóna þína og það er sumar en ekki vetur. Til að toppa þetta allt saman ætlar mamma að sofa í rúminu hans Siriks! Þrátt fyrir að hann hafi reynst þeim vel í Kambódíu þarna um árið treystir Freyja honum engan veginn. Og ekki batnar ástandið þegar systkinin verða vör við grunsamlega menn sem virðast eiga eitthvað sökótt við Sirik. Þegar mamma hverfur svo skyndilega fer allt á hvolf í Ástralíu og Freyja og Frikki þurfa enn á ný að leggjast í erfiða rannsóknarvinnu til að finna hana áður en það er um seinan. Með hverri bók og hækkandi aldri systkinanna takast þau á við nýjar og krefjandi áskoranir að sögn Felix. „Í þessari sögu eru þau orðin þrettán ára. Freyja á erfitt með skapið og skilur ekkert í sjálfri sér. Hún nær illa að snúa sólarhringnum við eftir martraðarkennt flug til Sydney og lendir stöðugt upp á kant við aðra fjölskyldumeðlimi.“ Frikki er á hina röndina að reyna að vera ákveðnari og trúa á sjálfan sig en honum reynist það erfitt og er iðulega sammála síðasta ræðumanni. „Þau þurfa svo að snúa bökum saman þegar mamma hverfur og reyna að finna hana áður en það verður of seint.“ „Ég hef notið þess í botn að skapa heiminn í kringum þau og leiða þau í ævintýri sem á löngum köflum virðast ætla að enda mjög illa. Þau eru að eldast og þroskast og ég vona að lesendur þroskist með þeim og læri af ævintýrum þeirra,“ segir Felix Bergsson um fjórðu bók sína um Freyju og Frikka. Óhætt er að lýsa Freyju sem fjörugu ólíkindatóli og Frikki sem hæglátum bókaormi. En skyldi Felix byggja persónur á raunverulegum persónum úr lífi sínu? „Ja stórt er spurt. Þau byggja auðvitað lauslega á börnunum mínum, Guðmundi og Álfrúnu Perlu, en ég held nú samt að þau séu mjög ólík þeim. Þau eru skáldaðar persónur en í öllum skáldskap notar maður eitthvað úr eigin lífi sem maður þekkir. Það eru margir einstaklingar undir þegar maður skapar persónu í bók.“ Við gerð fjórðu bókarinnar um Freyju og Frikka sá Felix jafnvel fyrir sér að hún yrði sú síðasta. „Ég hafði ekki ætlað mér að skrifa meira að sinni en við sjáum til hvað gerist. Bækurnar fjórar hafa fengið frábærar viðtökur frá hlustendum Storytel og kannski blæs ég til fimmtu bókarinnar. Það verður þó ekki alveg strax. Fyrst langar mig að heyra hvað lesendur og hlustendur segja um Allt á hvolfi í Ástralíu.“ Þuríður Blær Jóhannsdóttir og Felix Bergsson lesa bókina saman en Felix er tengdapabbi hennar. „Ég bý náttúrulega svo vel að hafa flotta listamenn í fjölskyldunni og Blær er án efa einhver besta leikkona landsins eins og hægt er að sjá t.d. í þáttunum Heima er best í Sjónvarpi Símans. Hún er líka frábær og vinsæll lesari. Blær hefur alveg náð að gera Freyju að sinni með persónulegri og fallegri nálgun á hlutverkið. Það er algjör lykill að velgengni bókanna um Freyju og Frikka.“ Ævintýri Freyju og Frikka: Allt á hvolfi í Ástralíu kemur út 15. nóvember hjá Storytel sem hljóð- og rafbók.
Bókaútgáfa Bókmenntir Börn og uppeldi Mest lesið Segir gagnrýnina til marks um normalíseringu barnagirndar Tónlist Kúluhúsið falt fyrir níutíu milljónir Lífið Suddalega slappt Stjörnustríðsslor Gagnrýni Fékk uppsagnarbréf, varð ófrísk og allt breyttist Lífið Eliza fór í viðtal til Kelly Clarkson: „Ég breytti ekki heiminum sem forsetafrú en ég reyndi að gera mitt“ Lífið Foreldrar sofa meira en margir halda Áskorun Mikil sorg á Alþingi Lífið Aðalsteinn Bergdal er látinn Menning Þingvellir stærsta verkefni Kaleo frá upphafi Lífið „Ég myndi ekki hrósa fólki fyrir að grennast“ Lífið Fleiri fréttir Ormsson með sjónvarpsmarkað í beinni útsendingu í kvöld Útivistarfatnaðurinn sem gerir íslenska sumarið betra Díllinn er nýtt app þar sem notendur finna bestu dílana Fiskikóngurinn fagnar stækkun með glæsilegri opnunarhátíð Heather Mills heldur fyrirlestur í Hagkaup Stórkostleg stemning á glæsilegri forsýningu Star Wars Hugarafl skilar nærri hálfum milljarði í samfélagslegan ávinning Svona færðu pallinn í toppstand fyrir sumarið Fulleldað sous vide lambakjöt er spennandi nýjung frá Kjarnafæði Sumir sofa eins og englar – gæti sængin verið leynivopnið? Næsta kynslóð sólarvarna fyrir andlit Einn stærsti rafbílaviðburður sumarsins Sumarveisla hjá Toyota í Kauptúni á laugardag Moroccanoil sér um glamúrinn á Eurovision Stuðningur sem skiptir raunverulega máli Betri svefngæði með bambus Meltingin eins og klukka og brennslan kikkaði í gang Hinn goðsagnakenndi óperusöngvari Sir Bryn Terfel kemur til Íslands Sjálfbær þróun kaupmannsins á horninu Bílahátíð ársins á Kletthálsi: Ofurtilboð í þrjá daga Þetta hefur gefið mér nýtt líf Húð- og feldumhirðuvörur sem draga úr ofnæmisvöldum frá hundum og köttum Hárlos hjá körlum: Hvað veldur og hvernig er hægt að grípa inn í? Nýr rafbíll BMW afhjúpaður í Hörpu Tannhjálp sinnir nauðsynlegri neyðarþjónustu tannlækna Nú er rétti tíminn til að huga að útisvæðinu „Sumarið byrjar hjá okkur“ Eva Laufey segir Hagkaup tilbúið í björtustu dagana Gerðu pallinn og svalirnar að uppáhaldsstað sumarsins! Hvernig tannlæknar leysa algeng útlitsvandamál Kaldir pottar eru orðnir hluti af daglegri rútínu margra landsmanna Sjá meira
Eliza fór í viðtal til Kelly Clarkson: „Ég breytti ekki heiminum sem forsetafrú en ég reyndi að gera mitt“ Lífið
Eliza fór í viðtal til Kelly Clarkson: „Ég breytti ekki heiminum sem forsetafrú en ég reyndi að gera mitt“ Lífið