Lífið

Kim Kardashian uppljóstrar leyni­legu húð­flúri

Jón Þór Stefánsson skrifar
Árið 2009 gaf Kim Kardashian til kynna að hún myndi aldrei fá sér húðflúr. Það hefur nú breyst.
Árið 2009 gaf Kim Kardashian til kynna að hún myndi aldrei fá sér húðflúr. Það hefur nú breyst. EPA

Bandaríska raunveruleikastjarnan Kim Kardashian hefur greint frá því að hún sé komin með húðflúr. Um er að ræða endalaust-tákn (∞).

„Það er nokkuð sem þið vitið ekki um mig,“ sagði Kim í nýjasta þætti The Kardashians.

„Ég og allir vinir mínir fengum okkur sams konar húðflúr. Allir settu þau á hendurnar sínar, en ég hugsaði með mér að ég myndi ekki gera það.“

Staðsetning húðflúrsins á líkama hennar er til þess fallin að það er lítið áberandi. Húðflúrið er á slímhúð í munni Kim, nánar tiltekið undir neðri vörinni.

Greint var frá því að Kim hafi fengið sér húðflúrið árið 2021. Ekki nóg með það, heldur var það rétt eftir að hún stjórnaði þætti af Saturday Nighit Live, en þar kynntist hún fyrrverandi kærasta sínum Pete Davidson. Kynni þeirra við gerð þáttarins eru sögð hafa verið kveikjan að sambandi þeirra.

Gömul ummæli Kim Kardashian hafa verið rifjuð upp af þessu tilefni. Árið 2009 var hún spurð hvort hún ætlaði að fá sér húðflúr. „Hvers vegna að setja límmiða á Bentley,“ svaraði hún.

Nú segir Kim: „Loksins setti ég límmiða á Bentley.“

„Enginn veit af þessu og enginn sér þetta. Ég á það meira að segja til að gleyma þessu,“ segir Kim. „Stundum lendi ég í því þegar ég er að bursta tennurnar mínar að ég sé eitthvað svart og mér bregður og hugsa með mér hvað þetta sé.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.