Þakkar þriðjudagur Heimilistæki 28. nóvember 2023 10:13 Þakkar þriðjudagur (e. Giving Tuesday) er alþjóðlegt fyrirbæri sem hófst árið 2012 og hefur þann einfalda tilgang að hvetja fólk til þess að gera góðverk.
Fyrirbærið hefur ekki farið hátt hér á landi en nú hafa Heimilistæki og tengdar verslanir ákveðið að halda daginn hátíðlegan í fyrsta sinn. Í dag, þriðjudaginn 28. nóvember, mun 10% af allri sölu verslana og netverslana Heimilistækja, Tölvulistans, Raflands, Kúnígúnd, Byggt og búið og Iittala búðarinnar því renna til endurhæfingar- og stuðningsmiðstöðvar Ljóssins. „Með því að gera Þakkar þriðjudegi hátt undir höfði viljum við skila þakklæti út í samfélagið og gefa til baka í kjölfarið á stórum tilboðsdögum í nóvember,“ segir Dísa Sigurðardóttir, markaðsfulltrúi Heimilistækja. „Við báðum starfsfólkið okkar að senda inn tillögur um góðgerðamál og bárust margar flottar tillögur. Að lokum voru valin fimm góðgerðafélög sem starfsfólk kaus síðan á milli. Úr varð að Ljósið hlýtur styrkinn í ár okkur öllum til mikillar ánægju enda mikilvægt starf sem þar er unnið og krabbamein eitthvað sem snertir okkur flest einhvern tímann á lífsleiðinni.“ Ljósið er endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein og aðstandendur þess en þangað getur fólk leitað til þess að fá aðstoð við að byggja upp þrek, auka virkni og bæta lífsgæði sín. Ljósið býður upp á fjölbreytta dagskrá, m.a. námskeið, fræðslufundi, líkamsrækt, nudd og margt fleira sem gagnast krabbameinsgreindum og aðstandendum þeirra. Á vefsíðu Ljóssins má finna frekari upplýsingar um starfsemina.
Góðverk Verslun Mest lesið Lengsti klukkutími ævinnar Gagnrýni Fyrirsætan og Dallas-leikkonan Annabel Schofield látin Bíó og sjónvarp „Skelfileg væmni og tilfinningaklám“ eða „eitt það allra áhrifaríkasta“ Lífið Verður að fara inn í nýjan áratug með stæl Lífið Tóti fékk bílinn lánaðan frá Líf Magneudóttur Lífið „Til hamingju með daginn Brooklyn, við elskum þig svo mikið“ Lífið Kattavinafélagið minnist dýravinarins Davíðs Lífið Slakur með 62 milljón króna hálsmen Tíska og hönnun „Búinn að setja miklu meira í þennan gám heldur en ég tók út“ Lífið Ómetanlegt að hafa sagt frá átröskuninni Lífið Fleiri fréttir Markviss húðumhirða fyrir húð sem fær bólur Unglingar þurfa ekki sýrukrem! Á fermingarkvöldi Hagkaups er farið yfir málin Nærföt og náttföt rjúka út í nýrri vefverslun Lindex Farðinn sem endurvekur þig Spilaðu golf allt árið með Evrópuferðum Stjörnukokkurinn Adam Dahlberg mætir á Lólu Öskursyngja ABBA lögin með áhorfendum Taktu þátt í konudagsleik Vísis Frá kvíða til aukins sjálfstrausts Draumaferð til Kína um páskana Hárlos eftir fæðingu, tímabundið eða varanlegt? Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Sjá meira