Er að vinna í því að hræra í orðin og hugmyndirnar Bylgjan 6. desember 2023 14:30 „Mig langaði að fókusa á lög með ákveðna frásögn sem mig langaði að koma til skila," segir Jónas Sig. Hann er næstur á svið í tónleikaröðinni Bylgjan órafmögnuð sem sýnd verður á morgun fimmtudag. Myndir/Hulda Margrét. Jónas Sig ásamt hljómsveit er næsti gestur Völu Eiríks í tónleikaröðinni Bylgjan órafmögnuð sem hófst í upphafi nóvember á Bylgjunni, Vísi og sjónvarpsstöðinni Stöð 2 Vísi. Tónleikarnir verða sýndir á morgun fimmtudag.
Þetta er þriðja árið sem tónleikaröðin er haldin en allir tónleikarnir fara fram í Bæjarbíói í Hafnarfirði. Milli laga spjallar Vala Eiríks við Jónas um allt milli himins og jarðar en hann segir þetta fyrirkomulag vera áhugavert enda sé gaman að prófa eitthvað nýtt og öðruvísi en hann sé vanur. Vala Eiríks spjallaði við Jónas Sig á milli laga. „Það sem gerist í svona spjalli er auðvitað að tónleikarnir verða allt öðru vísi, opnari og sérstaklega þegar spjallið fer út og suður,“ segir Jónas. „Þá opnast á alls konar umræðu sem maður myndi annars aldrei hafa tekið upp á venjulegum tónleikum þegar maður er að tala við fólkið.“ Svona óformlegt og betra flæði sé því skemmtilegt. „Ég gæti trúað að það sé líka skemmtilegt fyrir tónleikagesti að brjóta tónleikana upp með spjalli og allt flæði sé aðeins meira eins og maður sé heima í stofu með tónlistarmanninum.“ Þegar Jónas valdi lög á tónleikana reyndi hann fyrst og fremst að hugsa um frásögnina þar sem bandið var órafmagnað að mestu leyti. „Mig langaði að fókusa á lög með ákveðna frásögn sem mig langaði að koma til skila. Til dæmis lög eins og Hleypið mér út úr þessu partýi, sem er bara gaman að taka í svona aðstæðum þó ekki nema til að geta farið í gegnum þennan texta eins og prósa og allir heyri og skilja orðin.“ Jónas Sig og hljómsveit voru í miklu stuði. Hann segist hugsa þetta alltaf mjög mikið út frá orðunum. „Það eru orðin og merking laganna. Síðan hvaða tilfinning býr að baki hverju lagi. Hvert langar mig að fara tilfinningarlega og hvernig langar mig að tengjast salnum og viðburðinum.“ Undanfarin ár hafa verið frekar róleg hjá Jónasi þegar kemur að útgáfu nýrra laga og tónleikum því hann kom að stofnun sportafyrirtækis með vinum sínum og hefur verið að rækta það undanfarin misseri. „Það er skemmtilegur heimur, alveg eins og tónlistin. Svo lengi sem það sé sköpun og flæði, þá er ég ánægður því það er bensínið í lífinu. Á komandi ári langar mig að gefa meira út af nýju efni og ég er að vinna í því að hræra í orðin og hugmyndirnar í rólegheitunum. Þetta þarf allt að fá að gerjast á sínum tíma.“ Gestir skemmtu sér konunglega á tónleikunum. Það voru Jóhanna Guðrún, Klara Elías, Friðrik Dór, Una Torfa og Ragga Gísla sem komu fram á fyrstu tónleikunum í tónleikaröðinni. Lokaþáttur tónleikaraðarinnar verður fimmtudaginn 14. desember en þá verður sýndur sérstakur jólaþáttur þar sem allir flytjendur koma fram.
Tónlist Bylgjan Bylgjan órafmögnuð Menning Mest lesið Matt Brown er látinn Lífið Áslaug býður í partý Lífið Bréf til ókunnugrar stúlku varð upphafið að nýju lífi á Íslandi Lífið Dua Lipa gekk að eiga sinn heittelskaða í dag Makamál „Sögulegt augnablik“ fyrir þýska klúbbamenningu Lífið Mugison þakkar innilega fyrir sig Tónlist Moulin Rouge felld niður tvo daga í röð Lífið „Eins og að horfa á eftir börnunum sínum fara út í lífið“ Lífið Krakkatía vikunnar: Kóngur, kýr og mávagarg Lífið Fékk nýtt tækifæri með nýra frá mömmu Lífið Fleiri fréttir Ormsson með sjónvarpsmarkað í beinni útsendingu í kvöld Útivistarfatnaðurinn sem gerir íslenska sumarið betra Díllinn er nýtt app þar sem notendur finna bestu dílana Fiskikóngurinn fagnar stækkun með glæsilegri opnunarhátíð Heather Mills heldur fyrirlestur í Hagkaup Stórkostleg stemning á glæsilegri forsýningu Star Wars Hugarafl skilar nærri hálfum milljarði í samfélagslegan ávinning Svona færðu pallinn í toppstand fyrir sumarið Fulleldað sous vide lambakjöt er spennandi nýjung frá Kjarnafæði Sumir sofa eins og englar – gæti sængin verið leynivopnið? Næsta kynslóð sólarvarna fyrir andlit Einn stærsti rafbílaviðburður sumarsins Sumarveisla hjá Toyota í Kauptúni á laugardag Moroccanoil sér um glamúrinn á Eurovision Stuðningur sem skiptir raunverulega máli Betri svefngæði með bambus Meltingin eins og klukka og brennslan kikkaði í gang Hinn goðsagnakenndi óperusöngvari Sir Bryn Terfel kemur til Íslands Sjálfbær þróun kaupmannsins á horninu Bílahátíð ársins á Kletthálsi: Ofurtilboð í þrjá daga Þetta hefur gefið mér nýtt líf Sjá meira